Laugardagur, 10. apríl 2010
Stjórnmál og dómsmál
Hrunið varð ekki í dómsal, hvorki hér né erlendis. Hrunið varð vegna þess að íslenskir fjárglæframenn settu banka, lífeyrissjóði og almannahag að veði fyrir útrásinni. Veðmálið tapaðist ekki á heimavelli heldur á vettvangi alþjóðaviðskipta þar sem íslensku bankarnir fengu ekki lán. Svo að notað sé orðalag útrásarmanna; ,,lánalínur lokuðust."
Fíflin sem enn eru undir áhrifum útrásarinnar, til dæmis Steingrímur J., tala um að niðurstaða fáist í dómssal. Eðjót af þessu tagi eru ekki hluti af íslenskum veruleika. Hrunið verður ekki afgreitt með réttarúrræðum
Búsáhaldabyltingin fleytti Steingrími J. og gráhærðu vinkonu hans í stjórabráðið. Vinkonan er komin á aldur og fer bráðum á 95-ára regluna. Steingrímur J. ætlar sér ábyggilega framtíð í íslenskum stjórnmálum.
Jarðfræðingurinn með BA-próf úr Háskóla Íslands ætti að hafa í huga að stjórnmál eru mest stunduð utan dómsstóla.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Laugardagur, 10. apríl 2010
Terrortaktík Jóns Ásgeirs virkar
Jón Ásgeir Baugsstjóri skrifaði Steingrími J. fjármálaráðherra opinbert bréf þar sem hann biðst undan ávirðingum frá stjórnmálamönnum. Steingrímur J. kiknar í hnjánum og heykist á því að hafa skoðun á málefnum samtímans. Stjórnmálamenn sem ekki hafa skoðun eru einskins nýtir.
Hann hafi verið tiltölulega hófstilltur í viðbrögðum sínum og telji sig ekki þurfa að taka neitt til baka í þeim efnum. Ég sagði að mig undraði að sjá það sem glitti í, í þessum póstum, en það getur bara hver lesið fyrir sig og best að hver og einn geri það og myndi sér skoðun á því," segir Steingrímur.
Aumingjaháttur Steingríms J. verður aðeins skýrður með því að hann telji að yfirráð Jóns Ásgeirs yfir Baugsmiðlum veiti siðferðilega sakaruppgjöf á þeim hlut sem Baugsstjórinn átti í hruninu.
Skammastu þín, Steingrímur J.
![]() |
Bakkar ekki með nein ummæli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Laugardagur, 10. apríl 2010
Jón Ásgeir telur sig eiga vin í Steingrími J.
Steingrímur J. er fjármálaráðherra og hefur séð um að endurreisa bankakerfið. Tveir endurreistu bankanna, Arion banki og Landsbankinn, moka peningum í tvö fyrirtæki sem Jón Ásgeir Jóhannesson Baugsstjóri á enn, Haga og 365 miðla.
Bréf Jóns Ásgeirs ber það með sér að hann hafi verið meðvitaður um velvild Steingríms J. í sinn garð og að endurreistu bankarnir veiti fyrirtækjum Jóns Ásgeirs áframhaldandi fyrirgreiðslu m.a. fyrir sakir velviljaðs hlutleysis fjármálaráðherra.
Steingrímur J. þarf að útskýra fyrir alþjóð í fyrsta lagi hvaða tengingar eru á milli hans og Jóns Ásgeirs og í öðru lagi hvers vegna Jón Ásgeir nýtur enn fyrirgreiðslu endurreistu bankanna.
![]() |
Biður Steingrím að gæta orða sinna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Laugardagur, 10. apríl 2010
Össur án umboðs í ESB-málinu
Aðildarviðræður og aðlögunarferli er sitthvað. Alþingi veitti með samþykkt þingsályktunar 16. júlí 2009 heimild til umsóknar og aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Af hálfu ESB eru engar viðræður í boði, aðeins aðlögunarferli að reglum Evrópusambandsins. Framkvæmdastjórnin fylgist ítarlega með hvort umsóknarríki vinni heimavinnuna sína og aðlagist reglum sambandsins.
Hér er útskýrt af hálfu framkvæmdastjórnarinnar hvernig vinnan fer fram
Each autumn the Commission adopts its "enlargement package" - a set of documents explaining its policy on EU-Enlargement. The package includes an annual strategy document offering an updated overview of the Enlargement policy, its objectives and prospects, and an assessment of the progress made over the last twelve months by each of the candidates and potential candidates. In addition, detailed progress reports are published, where the Commission services monitor and assess in detail what each candidate and potential candidate has achieved over the last year and areas where more effort is needed.
Augljóst er að ríkisstjórnin hefur ekki umboð alþingis til að gera breytingar á stjórnsýslu íslenska ríkisins sem Evrópusambandið gerir kröfu um.
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra er án umboðs í ESB-ferlinu. Þessi staðreynd hefur síast inn í vitund fyrrverandi utanríkisráðherra, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, og hún fer fram á að viðræðum við Evrópusambandið verði slegið á frest.