Þriðjudagur, 9. mars 2010
Finnur fávísi og auðmennirnir
Finnur fávísi Sveinbjörnsson bankastjóri Arion er hefur í fanginu auðmannagengið Ólaf Ólafs, Björgólfsfeðga og Baugsfeðga. Finnur trúir lygaþvættingi auðmannanna um að þeir séu góðir menn sem lentu fyrir slysni í þeirri aðstöðu að eiga ekki fyrir skuldum.
Arion banki hefur tapað öllum trúverðugleika sem fjármálastofnun og er orðinn að sjálfstæðu siðferðisvandamáli á Íslandi.
Finnur fávísi á ekki að starfa deginum lengur í Arion.
![]() |
Samson greiddi lánið árið 2005 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 9. mars 2010
ESB-afskipti af innanríkismálum Íslands
Samfylkingin er einangruð í afstöðu sinni til aðildar Íslands að ESB. Þjóðin er á móti og atvinnulífið er á móti aðild að ESB. Við þessar aðstæður er ábyrgðarhluti af Evrópusambandinu að samþykkja aðildarviðræður við Ísland.
Ríkisstjórnin er rúin trausti; forsætisráðherra tekur ekki þátt í fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslu lýðveldisins; annar stjórnarflokkurinn er eindregið á móti aðild Íslands að ESB.
Bandalag ESB og Samfylkingar um að þvinga Ísland inn í Evrópusambandið verður ekki til að auka vinsældir málsaðila.
![]() |
Leggst eindregið gegn viðræðum við Ísland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 9. mars 2010
Þjóðaratkvæði án afleiðinga eykur ábyrgðarleysi
Ríkisstjórnarflokkarnir voru báðir talsmenn þjóðaratkvæðis þangað til Ólafur Ragnar sendi Icesave-frumvarpið til þjóðarinnar. Beint lýðræði í formi þjóðaratkvæðis verður á dagskrá næstu árin. Vísasti vegurinn til að koma óorði á þjóðaratkvæðagreiðslur er að efna til þeirra í tíma og ótíma.
Of margar þjóðaratkvæðagreiðslur myndu lama stjórnkerfið þar sem ríkjandi óvissa um stór mál og smá yrði til varanlegrar ákvarðanafælni.
Skynsamlegasta leiðin til að láta ábyrgð haldast í hendur við þjóðaratkvæðagreiðslur er að niðurstöðurnar hafi afleiðingar.
Með því að ríkisstjórn Jóhönnu Sig. ætlar að sitja áfram eins og ekkert hafi í skorist er ríkisstjórnin að segja við þjóðina að niðurstöður í allsherjaratkvæðagreiðslum séu ómarktækar.
Það styttist í að stjórnvöld virði að vettugi niðurstöður þingkosninga með þeim rökum að þær séu markleysa.
Heil.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 9. mars 2010
Drögum ESB-umsóknina tilbaka
Hrossakaup á alþingi leiddu til þess að umsókn um ESB-aðild var send til Brussel í sumar leið. Vinstri grænir keyptu ríkisstjórnaraðild með Samfylkingunni því verði að svíkja kjósendur sína og sannfæringu. Í janúar á þessu ári ályktaði flokksráð Vg gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Aðildarferlið gagnvart ESB er svo viðkvæmt að samninganefnd Íslands hefur ekki skilgreint samningsmarkmið sín enn.
Það þjónar hvorki íslenskum hagsmunum né hagsmunum Evrópusambandsins að halda áfram ferlinu sem hófst með ályktun alþingis 16. júlí síðast liðinn.
Drögum umsóknina tilbaka og snúum okkur að brýnni verkefnum en að eyða 3 milljörðum króna til að gera bjölluat í Brussel.
![]() |
Icesave ótengt inngöngu í ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |