Geðklofa Samtök iðnaðarins

Samtök iðnaðarins auglýsa ,,veljum íslenskt" en vill inn í Evrópusambandið. Samtökin játa því að útflutningsiðnaður græðir á krónunni en vill taka upp evru. Samtökin grétu það að íslenskir aðilar skyldu ekki eignast gjaldþrota ÍA verktaka heldur svissneskir; en fjórfrelsi ESB er einmitt til þess að gera sérhvert Evrópuland fjölþjóðlegt.

Samtök iðnaðarins eru út úr kú samtök sem vita ekki í hvorn fótinn þau eiga að stíga.  Mótsagnir í málflutningi samtakanna eru hallærislega augljósar.

Krafa þeirra um 5 prósent hagvöxt er jafnframt krafa um að spillingunni skuli sópað undir teppið.


mbl.is Frjór jarðvegur fyrir hefnigirni og hatur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mæta Steingrímur J. og Jóhanna á kjörstað?

Stóra spurningin í þjóðaratkvæðinu um Icesave er hvort forsætisráðherra og fjármálaráðherra mæta á kjörstað. Jóhanna Sig. og samfylkingarforysta talar atkvæðagreiðsluna niður, gefa henni einkunn eins og ,,markleysa" og ,,skrípaleikur", til að undirbúa jarðveginn fyrir frestun og til vara að fæla fólk frá því að greiða atkvæði.

Steingrímur J. sagði opinberlega að óvíst væri hvort hann myndi mæta að kjörstað en ef svo yrði myndi hann segja já.

Jóhanna Sig. á eftir að lýsa yfir hvort hún lætur svo lítið að taka þátt í fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslunni eftir stofnun lýðveldisins.


mbl.is Mikill áhugi erlendra miðla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byr fari sömu leið og VBS

Byr er græðgissparisjóður útrásarauðmanna og ekki í neinum tengslum við samfélagið. Það þjónar engum tilgangi að halda uppi fjármálaþjónustu sem hvorttveggja í senn er óþörf og skemmir fyrir nývæðingu fjármálalífsins.

Steingrímur J. fleygði 25 milljörðum króna í ónýtt VBS og svipað bull norðan heiða. Það er skammarleg meðferð á almannafé.

Byr á ekki að fá krónu úr sjóðum almennings. Nýsamþykktar reglur fjármálafyrirtækja beinlínis mæla fyrir um að litið skuli til forsögu félaga þegar metið er hvort skuli endurreisa þau. Það væri svartur brandari ef ríkið sýndi fordæmi með því að endurreisa græðgissjóðinn Byr.


mbl.is Lausafjárskortur ýtti VBS í fang FME
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. mars 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband