ESB-herfræðin sem rann út í sandinn

Samfylkingin ætlaði að setja hraðamet inn í Evrópusambandið og notfæra sér að þjóðin var í taugaáfalli eftir hrun. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og plottfélagar hans gerðu ráð fyrir að láta Íslendinga standa frammi fyrir orðnum hlut - umræðan skyldi vera í lágmarki og helst um þær glæsilegu undanþágur sem Ísland fengi.

Samfylkingin ætlaði að selja Evrópusambandinu þá hugmynd að Íslendingar væru sannfærðir aðildarsinnar og ef aðeins væri hægt að leysa þetta smámál með sjávarútveginn væri gatan greið fyrir samþykkt aðildar í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Þjóðin kveikti á hvers kyns var og hefur ítrekað mælst sannfærð í andstöðu við inngöngu, en milli 60 og 70 prósent segja nei við ESB-aðild. Undanþágurökin eru líka hvorki fugl né fiskur þegar betur er að gáð.

Æ betur rennur upp fyrir embættismönnum Evrópusambandsins að umsókn Íslands um aðild er frá Samfylkingunni en ekki ríkisstjórninni sem heild og enn síður frá þjóðinni.


Biðstjórn Jóhönnu Sig.

Ríkisstjórnin bíður eftir Bretum og Hollendingum í Icesave-málinu; eftir endurskoðun Alþjóðgjaldeyrissjóðsins; eftir að ESB-ríkin samþykki umsóknina; eftir sáttum við Samtök atvinnulífsins; eftir lækkun vaxta; eftir endurreisninni; eftir efnahagsbatanum; eftir næstu skoðanakönnun...
mbl.is Ísland kann að skorta stuðning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skjaldborg fyrir auðmenn

Fréttir um að höfuðstóll allra bílalána lækki um sömu hlutfallstölu, tæp 40 prósent,  þýðir að Range Rover fólkið fær gefins fjórar milljónir króna en hversdagsfólk afskrifaða eina milljón króna. Skilaboðin sem send eru í út í þjóðfélagið eru þau að skuldsetning sé af hinu góða.

Því djarftækari sem fólk er til lána og bruðls því meiri aðstoð fær það frá hinu opinbera.

Næsta skref ríkisstjórnar Jóhönnu Sig. hlýtur að vera að afskrifa lánin á 500 fermetra einbýlishúsunum til að auðmennirnir geti átt húsnæði í stíl við Range Roverinn.


Bloggfærslur 30. mars 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband