Laugardagur, 27. mars 2010
Evrópukratismi og frjálshyggja
Frjálshyggjan er dauð og lifnar ekki við þótt Dagur B. reyni að berja í hana líf. Frjálshyggja, það er að segja í merkingunni markaðsfrjálshyggja sem mælir fyrir að djarfir gaurar eins og Jón Ásgeir, Pálmi í Fons og Björgólfur yngri eigi að vra drifkrafturinn í hagkerfinu.
Fyrr heldur en seinna áttar Sjálfstæðisflokkurinn sig á gömlum gildum um sparsemi, ráðdeild og ábyrgð og snýr baki við frjálshyggjunni sem leiddi land og þjóð fram af bjargbrúninni.
Þegar Sjálfstæðisflokkurinn snýr baki við frjálshyggjunni mun það koma verst við Samfylkinguna sem er afrita-líma-flokkur. Í ljósriti samfylkingarfólks af frjálshyggju sjálfstæðismanna segir að Jón Ásgeir og Baugsmiðlar eigi að vera sverð og skjöldur Evrópukratanna íslensku.
![]() |
Mörg hundruð störf í húfi" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 27. mars 2010
ESB-umsóknin klýfur ríkisstjórnina
Icesave er samningatæknilegt vandamál sem auðleyst er innanlands með samstöðu stjórnmálaflokka. Umsóknin um aðild Íslands að ESB er á hinn bóginn stórpólitískt mál þar sem um 70 prósent þjóðarinnar er á móti inngöngu samkvæmt ítrekuðum mælingum.
Með því að stilla Vinstri grænum upp við vegg eftir kosningarnar á liðnu ári og neita að ræða stjórnarmyndun nema Vinstri grænir samþykktu að sækja um aðild að ESB gróf Samfylkingin gröf stjórnarinnar áður en hún var mynduð.
Ef Jóhanna Sigurðardóttir meinar eitthvað með þeim orðum að ríkisstjórnin eigi að þétta raðirnar ætti hún að leggja fram þingsályktun í nafni stjórnarinnar um að draga umsóknina um aðild að ESB tilbaka.
Djarft útspil af þessum toga gæti komið ríkisstjórninni á beinu brautina.
![]() |
Ósamstaða VG veikir stjórnina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Laugardagur, 27. mars 2010
ESB bannar ríkisábyrgð á sparifé umfram lágmark
Evrópusambandið hefur bannað ríkisábyrgð á sparifjárreikninga umfram lágmark. Tilskipun ESB mun einnig gilda á Evrópska efnahagssvæðinu, sem Ísland á aðild að. Samkvæmt norskum fjölmiðlum mun tilskipunin valda því að ríkisábyrgð á norskum bankareikningum lækkar um helming.
Lágmarksábyrgð á sparifjárreikningum samkvæmt ESB er í dag rúmar 20 þús. evrur (meint Icesave-ábyrgð) en mun hækka í 100 þús. evrur. Í dag er ríkjum frjálst að ákveða umframábyrgð á sparifé og hafa flestar þjóðir nýtt sér það að einhverju marki.
Tilraunir til að fá undaþágur frá tilskipun ESB hafa ekki borið árangur. Yfirlýst markmið tilskipunarinnar er að jafna samkeppnisstöðu banka.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 27. mars 2010
Ríkisstjórnin á öngvan vin
Samtök atvinnulífsins þvo hendur sínar af ríkisstjórninni og Alþýðusambandið heggur til stjórnarinnar. Í skoðanakönnun mælast óvinsældir ríkisstjórnar Jóhönnu Sig. meiri en hrunstjórnar Geirs H. Haarde. Ríkisstjórn með þjóðina og helstu hagsmunasamtök á móti sér er ekki líkleg til að koma málum fram.
Í ljósi þess að efnahagslífið er ekki í jafn djúpum öldudal og óttast var, fjármál ríkisins ögn betri en vonir stóðu til og endurreisn bankanna virðist í höfn er nokkurt afrek af hálfu ríkisstjórnarinnar ná þessum hæðum óvinsælda.
Í meginatriðum eru tvær ástæður fyrir óvinsældum ríkisstjórnarinnar. Í fyrsta lagi tækifærismennska Samfylkingarinnar og í öðru lagi hroki Steingríms J. Tækifærismennskan kemur fram í ESB-umsókninni, sem átti að leysa flest vandamál, og hrokinn í Icesave-málinu þar sem Steingrímur J. hafnaði leið samstöðu og ætlaði að keyra handónýtan samning ofan í kokið á þjóðinni.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)