Fangelsi breytir hugarfari fjármálamanna

Þórður Friðjónsson forstjóri Kauphallarinnar sagði á fundi í dag að ekki væri nóg að breyta lögum og reglum um fjármálalífið heldur yrði hugarfar þeirra sem þarf störfuðu að breytast. Bragð er að þá barnið finnur.

Óskir um hugarfarsbreytingu stoðar á hinn bóginn lítt. Fréttir eftir hrun sýna svo ekki verður um villst að forhertir braskarar réðu ríkjum í atvinnulífi útrásarinnar. Kónar af þessu tagi taka ekki fortölum.

Fangelsisdómar yfir þeim sem brutu af sér á útrásarárunum munum á hinn bóginn breyta hugarfari. Að því gefnu að dómarnir verði nógu margir og strangir.


Réttlæti er lífsgæði

Útrásarruglið brenglaði dómgreind og siðvit þjóðarinnar. Úrkynjun siðvitsins sést á því að innan bankanna þrífst enn fólk sem heldur að það eigi að fá bónusgreiðslur og að sjálfsagt sé að útrásarauðmenn fái niðurfelldar skuldir.

Dómgreind þjóðarinnar beið hnekki en tjónið er ekki varanlegt. Fólk mun sætta sig við hærri skatta og skerta almannaþjónustu vegna þess að það veit að útrásin var blekkingarauður.

Forsenda þess að fólk taki versandi hag með stóískri ró er að stjórnvöld geri sitt til að réttlætið nái fram að ganga.

Minni efni geta auðveldlega verið ávísun á meiri lífsgæði.


Seðlabanki kyndir undir eyðslu

Seðlabankinn stuðlar að eyðslusamfélagi með hraðari lækkun vaxta en nemur verðbólgulækkun. Sparifjáreigendur sem sjá fram á neikvæða raunávöxtun mun fremur setja peningana í eyðslu en að horfa upp á brennslu þeirra í bankakerfinu.

Við þurfum ráðdeild mun meira en atvinnulífið þarf lága vexti. Atvinnulífið reynir að komast hjá kjarnalærdómi hrunsins sem er að þensla leiðir til ófarnaðar.

Í atvinnulífinu er enn rekstur sem ekki borgar mannsæmandi laun. Vextir eiga að drepa þennan rekstur.


mbl.is Stýrivextir verða 9%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. mars 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband