Baugsfeðgar skuggastjórnendur Arion

Þéttriðið net hagsmuna er skýringin á því hvers vegna Baugsfeðgar fá tækifæri til að eignast Haga á ný mínus 50 milljarða afskriftir sem Arion banki tekur á sig. Á útrásarárunum varð til lokaður hópur innherja sem áttu sér sameinlæga hagsmuni og tileinkuðu sér áþekkan lífstíl.

Í innherjahópnum voru peningahákarlar í bland við bankastarfsmenn og meðhlaupara úr röðum fjölmiðla og stjórnmála. Eftir hrunið hvarf mest af peningunum en samböndin stóðu eftir sem og upplýsingar um hvernig menn höfðu hagað sér á útrásarárunum.

Tök Baugsfeðga á lykilmönnum í Arion-banka eru nægilega sterk til að bankinn baki sér óvild þorra almennings til að tryggja að feðgarnir stýri áfram Högum og eigi möguleika á að eignast fyrirtækið en skilja eftir 50 milljarða króna í skuldir.


Einkavæðing orkunnar, ríkisstjórnin máttlaus

Útrásarauðmenn eins og Jón Ásgeir Jóhannesson og Hannes Smárason sáu möguleika í að mjólka orkulindir og stofnuðu REI í samstarfi við ginnkeypta stjórnmálamenn eins og Björn Inga Hrafnsson og Vilhjálm Vilhjálmsson.

Geysir Green Energy er afkvæmi útrásardrauma en fyrirtækið var tekið upp í skuld. Í útrásarferlinu tókst setja eignarhluti í orkufyrirtækjum í hendur Magma Energy Corporation sem stofnaði sænskt skúffufyrirtæki um eignarhlutinn.

Ríkisstjórnin virðist ekki hafa áhuga að sporna við einkavæðingu orkuauðlinda. Fallna útrásarliðið er óðum að ná vopnum sínum gegn ríkisstjórn sem veit ekki í hvorn fótinn hún á að stíga.


mbl.is Magma stofnar dótturfélag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ellismellir og afdankaðir vilja í ESB

Meðalaldur þeirra sjálfstæðismanna sem standa að fundarboði aðildarsinna er ískyggilega nálægt grafarbakkanum. Jafnvel með langlífi munu hvorki Ragnhildur Helgadóttir né Jónas Haralz reyna þær hörmungar sem aðild að Evrópusambandinu hefur á fullveldið. Aðild þarf að hugsa í samhengi áratuga og alda ekki mánaða og missera.

Ásamt Jónasi og Ragnhildi eru í aðildarliðinu afsettur formaður, afdankaður þingmaður og mosfellskur kappleikjaáhorfandi þekktur fyrir miður háttvíst orðbragð.

Sjálfstæðismenn sem vilja aðild að Evrópusambandinu þurfa bæði að finna sér nýjan flokk og aðra þjóð.


Bloggfærslur 9. febrúar 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband