Sunnudagur, 7. febrúar 2010
Ríkisstjórnin örmagna og vill Framsókn með
Ríkisstjórn Jóhönnu er komin á endastöð. ESB-ruglið, Icesave-klúðrið, fyrningar-fokkið og almenn ákvarðanafælni er alþjóð augljós. Skilaboðin eru farin að síast inn í vitund stjórnarflokkanna að þeir verða rassskelltir í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Samfylkingin mun fá sýnu verri útreið en Vinstri grænir.
Samfylkingarmenn standa á bakið við þann orðróm um að Framsóknarflokkurinn sé á leiðinni í ríkisstjórn. Formaður Framsóknarflokksins hefur þurft að neita áburðinum.
Dauðahryglan í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir mun yfirskyggja alla aðra pólitíska umræðu þangað til ríkisstjórnin biðst lausnar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 7. febrúar 2010
Efnahagstilraun í járnum
Nær öll ríki vestan hafs og austan juku framboð af peningum til að vega á móti samdrætti á lánamörkuðum. Hrossalækningin að prenta peninga tekur aðeins á einkennum sjúkdómsins, sem var að fjármálastofnanir óttuðust að lána peninga í hagkerfi í samdrætti þar sem gjaldþol skuldara var lítið.
Afleiðingarnar af því að prenta peninga verður verðbólga. Tímasetningin þegar dregið verður úr framboði af peningum skiptir höfuðmáli.
Sum ríki munu rata á rétta tímsetningu, önnur ekki.
Og Ísland? Við glímum við önnur vandamál enda tókum við dýfuna fyrr en nær allir aðrir.
![]() |
Skuldir ógna efnahag Danmerkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)