Laugardagur, 6. febrúar 2010
Samfylkingin þvær hendur sínar af Icesave
Eins og við manninn mælt taka samfylkingarmenn vísbendingu Kristrúnar Heimisdóttur í grein i Fréttablaðinu í dag: Icesave-samningurinn er alfarið á ábyrgð Vinstri grænna. Fjármálaráðherra skipaði vildarvin sinn og pólitískan fóstra, Svavar Gestsson, yfir samninganefndina og sá fargaði hagsmunum Íslands.
Samfylkingarlínan um Icesave-málið kemur heim og saman við náttúru flokksins, sem er að sækjast eftir völdum en afneita allri ábyrgð.
Jóhanna forsætis er farin í vetrarfrí, líklega vegna þess að jafnvel henni líður ekki vel með aðferð Samfylkingarinnar við að láta Steingrím J. dingla einan í snörunni.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Laugardagur, 6. febrúar 2010
Byr fari í gjaldþrot
Byr er útrásarsparisjóður sem engin tengsl hefur við samfélagið sem sjóðurinn á að þjóna. Byr á að slá af og skapa þar sem svigrúm fyrir aðrar fjármálastofnanir.
Byr er skólabókardæmi um græðgisvæðingu útrásartímabilsins og á vitanlega að fara sömu leið og Spron.
Nú þegar eru þeir of margir sem veita fjármálaþjónustu hér á landi. Of þung yfirbygging veit aðeins á vaxtamun þar sem almenningur mun þurfa að greiða hærri vexti til að standa undir ofvexti í fjármálageira.
![]() |
Ríkið vill eignast Byr |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 6. febrúar 2010
Tvöfaldur glæpur Arion
Arion banki vinnur gegn samfélaginu sem bankinn á að þjóna. Í tilfelli Haga er bankinn sekur um tvöfaldan glæp. Í fyrsta lagi með því að selja Haga í heilu lagi og þar með einokunarstöðu sem fyrirtækið hefur á smásölumarkaði. Í öðru lagi að leyfa aðkomu Baugsfeðga, Jóns Ásgeirs og Jóhannesar, að fyrirtækinu sem þeir settu á hausinn.
Samþjöppun auðs var forsenda fyrir útrásinni sem leiddi yfir okkur hrunið. Baugsfeðgar notuðu yfirþyrmandi stöðu sína á smásölumarkaði til að útiloka samkeppni. Arði af fákeppnisrekstri var veitt í áhættufjárfestingar hér heima og erlendis.
Arion leggur grunn að nýrri útrás Baugsfeðga með því að leyfa þeim að halda Högum.
Við eigum að setja viðskiptabann á Arion banka.
![]() |
Ýmsar leiðir færar við að tryggja dreifða eignaraðild |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |