Föstudagur, 5. febrúar 2010
ESB-sagnfræðingur í RÚV-ESB
Guðmundur Hálfdanarson sagnfræðingur er á launum hjá Evrópusambandinu að endurskrifa söguna. Aðalmarkmið Guðmundar er að skrifa út úr sögunni fullveldi þjóða og setja í staðinn samevrópska vitund inn í þjóðarsögu.
Í Víðsjá RÚV-ESB var Guðmundur í viðtali í dag. Meðal gullkorna sem flutu úr munni ESB-sagnfræðingsins var að Frakkar og Þjóðverjar komust að því eftir seinni heimsstyrjöld að endurskrifa þyrfti söguna. Íslendingar hefðu misst af þessari lexíu og væru þess vegna afbrigðilegir.
Samkvæmt Guðmundi eigum við fórna fullveldi okkar vegna þess að Frakkar og Þjóðverjar hafa ákveðið það. Guðmundur hlýtur að vera samfylkingarmaður.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Föstudagur, 5. febrúar 2010
Samstaða eða samsæri?
Stjórnmálaflokkar, hvaða nafni sem þeir heita, eiga ekki inni hjá þjóðinni þolinmæði. Þegar formenn stjórnarandstöðuflokkanna segja í gærkvöld að það stefni í samkomulag milli stjórnar og stjórnarandstöðu um afstöðuna til Icesave þá þarf það samkomulag að liggja fyrir sem fyrst.
Það vekur tortryggni þegar forysta Sjálfstæðisflokksins pantar ályktun frá Heimdalli sem blessar samkomulag sem ekki er enn búið að kynna.
Stjórnarandstaðan hefur staðið vaktina gegn Icesave-klúðri ríkisstjórnarinnar. Fyrir það á hún lof skilið. Lofsöngurinn mun snarlega þagna ef Bjarni Ben. og Sigmundur Davíð svíkja okkur.
![]() |
Fagna samstöðu á Alþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 5. febrúar 2010
Auðmannadekur Samfylkingar
Samfylkingin kom sér upp auðmönnum á útrásartímanum í þeim tvöfalda tilgangi að fá fjármagn og tilvistarrétt. Í Samfylkingunni er ekki til pólitísk sannfæring, aðeins taktík til að ná völdum. Á tímum útrásar var taktísk nauðsyn að eiga auðmenn að bandamönnum.
Í Borgarnesræðu sinni tilgreindi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fjóra auðmenn sem sérstaka vildarvini Samfylkingarinnar. Þeir Jón Ólafsson sem kenndur er við Skífuna, Jón Ásgeir Jóhannesson Baugsstjóra og Kaupþingsstjórana Sigurð Einarsson og Hreiðar Má Sigurðsson.
Í gær var upplýst að annar formaður Samfylkingarinnar stimplaði sig í auðmannagengið, en Össur Skarphéðinsson núverandi utanríkisráðherra seldi stofnbréf í Spron og græddi nokkra milljónatugi.
Samfylkingin er fjármögnuð af auðmönnum og sérstaklega hefur Jón Ásgeir verið duglegur að setja peninga í flokkinn. Hann á líka sérstakan aðgang að forystu Samfylkingarinnar. Þegar bankinn hans Jóns Ásgeirs, Glitnir, var tekinn yfir af Seðlabankanum kallaði Jón Ásgeir viðskiptaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, inn á teppið og las honum pistilinn.
Eftir hrunið flaug Jón Ásgeir inn með viðskiptafélag sinn og fékk áheyrn hjá Björgvini G. með þá hugmynd að kaupa Baug og Baugseigur í útlöndum á fimm prósent af nafnvirði. Eigurnar voru þá komnar til skilanefndanna og Björgvin G. gat ekki liðsinnt Jóni Ásgeiri þótt hann væri vitanlega allur af vilja gerður.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)