Þriðjudagur, 16. febrúar 2010
Ísland ómarktækt vegna ESB-umsóknar
Umheimurinn er farinn að líta á Ísland sem ESB-þjóð vegna umsóknar Samfylkingarinnar um aðild að sambandinu. Hvorki Kanadamenn, Bandaríkjamenn né Rússar hafa áhuga að hleypa ESB nær norðurslóðum en brýna nauðsyn ber til. Með því að Evrópusambandið myndi fara með utanríkisviðskipti fyrir hönd Íslands við inngöngu vilja norðurslóðaþjóðir ekki leyfa íslenska aðkomu.
Samfylkingin vinnur skipulega gegn íslenskum hagsmunum í bráð og lengd. Vegna umsóknarinnar er litið á Ísland sem þjóð sem gefist hefur upp á sjálfri sér og sagt sig til sveitar hjá Brussel.
Á meðan starfsmenn ráðuneyta föndra við ESB-umsókn er Íslandi úthýst í samvinnu nærþjóða. Skemmdarverk Samfylkingarinnar á hagsmunum okkar verður að stöðva fyrr heldur en seinna.
![]() |
Íslandi og Inúítum úthýst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 16. febrúar 2010
Íslands hamingju allt að vopni
Samfylkingarliðið sem vill okkur inn í ESB er í vörn; þjóðin veit að innganga þýðir framsal forræðis eigin mála og að Brussel mun reikna okkur niður í evrópska meðalafkomu sem þýðir íslensk fátækt; Evrópusambandið er í kreppu með evruna og jaðarríki eins og Írland, Lettland og Grikkland lepja dauðann úr skel.
Öflugustu atvinnuvegir landsins eru á móti inngöngu og jafnvel þeir sem til skamms tíma vildu inngöngu, aðilar Viðskiptaráðs, hafa tekið sönsum og segja nei við inngöngu.
Við sláum tvær flugur í einu höggi: ESB-aðild verður felld og við jörðum Samfylkinguna.
![]() |
Munu mæla með aðildarviðræðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 16. febrúar 2010
Evran er óholl öllum nema ÞýskFrakklandi
Írar og Grikkir væru betur í stakk búnir að takast á við kreppuna án evru. Bretar láta sér ekki til hugar koma að taka upp evru. Að stofni til er evran pólitískt verkfæri fyrir samrunaferli Evrópu. Evran sem hagstjórnartæki gagnast þeim tveim ríkjum sem mestu ráða í ESB, þ.e. Þýskalandi og Frakklandi.
Gengisstöðugleiki sem fæst með evru verður að óstöðugleika annars staðar í efnahagskerfinu.
Íslenskt atvinnulíf er óðum að skilja að ESB-evru redding Samfylkingar er svartagaldurspólitík.
![]() |
Tvöfalt meira atvinnuleysi vegna evru |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 16. febrúar 2010
Þurfa allt, nema að standa í skilum
Baugsfeðgar, margir ESB-sinnar og all nokkrir myntkörfulántakendur eiga það sameiginlegt að líta á sínar þarfir sem upphaf og endir á tilverunni. Þarfir þessa fólks eru býsna víðtækar en þeim lýkur snarlega þegar fólkið þarf að standa reikningsskil gjörða sinna.
Baugsfeðgar telja viðskiptabanka til þess gerða að sinna sínum þörfum til að standa í stórræðum á kostnað annarra. ESB-sinnar telja nauðsynlegt að Ísland gangi í Evrópusambandið svo að Íslendingar þurfi ekki að greiða reikninginn sjálfir fyrir óráðssíu undanfarinna ára. Sumir myntkörfulántakendur eru þeirrar skoðunar að áhættusöm lántaka sé ekki þeirra áhætta heldur annarra. Og af því leiði að aðrir eigi að borga lánin en lántakendur.
Græðgisvæðing undanfarinna ára hefur deyft tilfinninguna fyrir réttlæti og eflt óseðjandi þarfir yfirgangsfólks. Tímabært er að stöðva þessa þróun.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)