Föstudagur, 12. febrúar 2010
Samtök útrásarauðmanna í samsæri gegn almenningi
Hagvöxtur er ekki forgangsatriði heldur heilbrigt atvinnulíf sem spilltist krabbameinsvexti útrásarinnar. Samtök atvinnulífsins eru skipuð fólki sem útrásarauðmenn röðuðu á garðinn. Enginn lærdómur er dreginn af hruninu heldur á að drífa upp fimm prósent árlegan hagvöxt.
Gangi þessi krafa fram verður brýnasta verkefni stjórnvalda gagnvart atvinnulífinu látið sitja á hakanum. Verkefnið er tvíþætt. Annars vegar að koma í veg fyrir að útrásarauðmenn sölsi undir sig eigur og fái til þess afslátt frá bankastofnunum í ríkiseigu eða undir ríkisvaldinu. Hins vegar að brjóta um eignarhaldsfélögin og tryggja að fákeppni verði ekki aftur ráðandi einkenni í atvinnulífinu.
Eftir þenslu síðustu ára er nauðsynlegt að drepa niður fæti og meta aðstæður. Krafa um fimm prósent hagvöxt er ávísun nýjar hörmungar. Tökum ekki leiðbeiningum frá liðinu sem leiddi þjóðina í hrunið.
![]() |
5% árlegur hagvöxtur nauðsyn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Föstudagur, 12. febrúar 2010
Lygin í Hollandi, íslenska bullið og Evrópa
Hvort sem Björgvin G. Sigurðsson laug að hollenskum stjórnvöldum eða ekki var löngu búinn að kokgleypa íslenska útrásarbullið og mærði það heima og erlendis. Björgvin G. verður hvorki marktækari stjórnmálamaður né sök hans minni þótt Hollendingum sé bent á að hver sæmilega greindur maður sá löngu fyrir hrunið á Íslandi að bankarnir hér stóðu á brauðfótum.
Icesave-reikningarnir voru starfræktir í skjóli evrópskra reglna sem margbúið er að sýna fram á að voru illa úr garði gerðar. Fréttir um að Frakkar hafi hafnað Icesave sýna svo ekki verður um villst að stjórnvöld í hverju ríki höfðu töluvert um það að segja hvort íslenska ryksugan fengi starfsleyfi.
Björgvin G. er eins og Samfylkingin sem forherðist. Í stað þess að kannast við Evrópuruglið í Icesave-málinu vill þetta fólk meira af ESB og krefst inngöngu fyrir hönd okkar allra án þess að hafa umboð til þess.
![]() |
Rannsaka ásakanir um lygar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 12. febrúar 2010
Ritskoðun Steingríms J.
Ríkisstjórnin lofaði gagnsæjum vinnubrögðum en trekk í trekk er stjórnin uppvís að laumuspili. Nærfellt allt Icesave-málið er af hálfu stjórnarinnar myrkri hulið. Steininn tekur úr þegar fjármálaráðherra reynir að hlutast til um fréttir fjölmiðla og koma í veg fyrir birtingu efnis sem hann telur óheppilegt að almenningur heyri.
Valkvætt gagnsæi Steingríms J. og ríkisstjórnarinnar er nóg slæmt. Íhlutun í málefni ritstjórna er skelfing.
Rökin fyrir ritskoðuninni eru eins léleg og áráttan að baki: Röng frétt fellur niður dauð af sjálfu sér og getur ekki verið skaðleg neinum nema ritstjórninni sem ber ábyrgð á henni.
![]() |
Bað RÚV að birta ekki fréttina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)