Ólafur Ragnar er maður ársins

Rökstuðningurinn fyrir Ólafi Ragnari sem manni ársins er úr bloggi skrifuðu skömmu eftir að hann tilkynnti að Icesave-samningur Jóhönnu og Steingríms J. færi í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þar skoraði forsetinn stórt.

 

Forsetagígabæt í þágu þjóðar

Ólafur Ragnar Grímsson ber höfuð og herðar yfir íslenska stjórnmálamenn og sannaði það rækilega á tveim fundum með blaðamönnum, öðrum í BBC og hinum á heimaslóðum. Í BBC hélt hann vel sínu og kom málstað landsins á framfæri gagnvart höggþungum spyrli sem jafnan lætur viðmælendur sína ekki komast upp með moðreyk.

Á blaðamannafundi með íslenskum blaðamönnum var forsetinn fullorðinn meðal barna. Spurningu frá blaðamanni um hvort forsetinn hlypi á eftir skoðanakönnunum en léti almannahag um lönd og leið svaraði Ólafur Ragnar þannig að ef valið stæði á milli lýðræðisvilja þjóðarinnar og markaðarins myndi hann ávallt velja það fyrrnefnda. Blaðamaðurinn sem hafði skreytt mál sitt með enskum orðum, ,,public interest," og ,,public opinion" kom út eins og hálfviti en forsetinn snillingur.

Ólafur Ragnar hefur marga fjöruna sopið á ferli sínum. Ef innrætið væri í takt við snilli hans myndi þjóðin gera 14. maí að degi er stæði á milli 17. júní og 1. desember að hátíðleika.

 


Kukl á tímum Snorra og Samfylkingar

Konur eru hneigjast meira til kukls, hindurvitna og nýaldarspeki en karlar. Svo hefur verið um hríð. Heimskringla sem Snorri Sturluson telst setja saman á þrettánduöld segir um spár fyrir óorðna hluti

En þessi fjölkynngi, er framið er, fylgir svo mikil ergi [þ.e. hommaháttur] að eigi þótti karlmönnum skammlaust við að fara og var gyðjunum kennd sú íþrótt.

Samfylkingin er undirlögð pólitísku kukli og skartar þrem kvenkyns formönnum [Margrét Frímanns talin með] á stuttum líftíma.

Hér er engri tilviljun að dreifa.


Napóleon, Hitler og evran

Enski sagnfræðingurinn E.H. Carr skrifaði bók sem kom út 1942, í miðri seinni heimsstyrjöld. Heiti bókarinnar er Skilyrði fyrir friði, Conditions of Peace. Carr ræðir sögu Evrópu í samhengi við stóratburði frá frönsku byltingunni og skrifar á bls. 10 þessa setningu

Hitler, like Napoleon, has performed the perhaps indispensable function of sweeping away the litter of the old order.

Carr var sannfærður um að Hitler líkt og Napóleon myndi tapa stríðinu, og hann skrifar bókina fyrir El Alamein og Stalíngrad. Sagnfræðingurinn telur engu að síður að Hitler þjóni sögulegu hlutverki, að sópa burtu stokkfreðnu skipulagi sem reynt var að lappa upp á í Versalasamningunum eftir fyrr a stríð. Verkefni Napoleons rúmum hundrað árum fyrir fyrra stríð var að kasta rekunum á lénsskipulag miðalda.

Í lokakaflanum í bók Carr er að breyttum breytanda uppskrift að Evrópusambandinu. Hann varar við hefndarþorsta Versalasamningsins, leggur áherslu á hagnýt viðfangsefni og talar niður sjálfsforræði þjóða.  Lausleg athugun á framlagi Carr til breskrar umræðu um bendir ekki til að hann hafi verið spámaður, hvorki í sínu föðurlandi né á meginlandinu - kannski vegna þess að hann hneigðist til marxisma. Af því má álykta að hugmyndir sem hann talar fyrir hafi víða átt sér samastað.

Evrópa var klofin eftir stríð í vestur, þar sem Bandaríkin höfðu forræði, og í austurhluta undir sovésku valdi. Verkefnið sem Carr sagði nauðsynlegt var fryst í fimmtíu ár eða svo en varð að veruleika þegar Austur-Evrópuþjóðir tóku að tínast inn í Evrópusambandið upp úr síðustu aldamótum. Þau 27 ríki sem mynda sambandið gera það meira af illri nauðsyn en heilum hug eins og komið hefur á daginn í yfirstandandi fjármálakreppu.

Verkfærin sem sagan notar til að smækka Evrópu verða ómerkilegri eftir því sem tímar líða og álfan verður áhrifalausari í henni veröld. Napóleon var stórmenni, Hitler geðsjúklingur og evran er mynt.

 

 


Bloggfærslur 26. desember 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband