Stefán Haukur á heimavígstöðvarnar

Aðalsamningamaður Íslands vegna umsóknarinnar um aðild að Evrópusambandinu hefur verið kallaður heim að berjast til síðasta blóðdropa fyrir framgangi gæluverkefnis Samfylkingarinnar. Baráttan er töpuð en yfirmaður Stefáns Hauks er búinn að veðsetja pólitíska framtíð sína fyrir aðild og getur þess vegna ekki viðurkennt ósigur.

Samfylkingararmur ríkisstjórnarinnar og Evrópusambandið breyttu um taktík í ár þegar það rann upp fyrir þeim að Íslendingar myndu kolfella aðild. í stað 12-16 mánaða aðlögunarviðræðna verður reynt að teygja lopann í  tvö til fjögur ár í von um að Eyjólfur hressist.

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hyggst beita Stefáni Hauki fyrir samfylkingartrúboðið hér heima. Innan tíðar verður Stefán Haukur að gera upp við sig hvort hann sé embættismaður eða pólitísk strengjabrúða.

Í niðurskurði á fjárveitingum til sjúkrahúsa, elliheimila og atvinnuleysingja tryggði Samfylkingin Össuri fjármuni til að halda áfram Brusselbrallinu. Einn af þeim sem unnið hefur að aðlögunarviðræðum Íslands er Högni Kristjánsson skrifstofustjóri sem fær núna framgang til sendiherra. Högni viðurkenndi á fundi í Háskóla Íslands í haust að Íslandi reyndi að fá undanþágu frá aðlögunarferlinu inn í Evrópusambandið.

Stefán Haukur og Högni eru vænir piltar með vondan yfirmann.


mbl.is Sendiherraskipti í Brussel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólakveðja Van Rompuy

Belgíski forseti Evrópusambandsins Herman Van Rompuy segir í aðfangadagsútgáfu hollenska viðskiptablaðsins NRC Handelsblad að vegna kreppunnar á evrusvæðinu sé aðeins ein leið fær, að evru-löndin sextán verði pólitískt sambandsríki.

De eurolanden zijn bereid tot meer politieke integratie. Oorzaak: de eurocrisis. Dat zegt Europees president Herman Van Rompuy vandaag in een vraaggesprek met NRC Handelsblad.

Örvæntingin í málflutningi Van Rompuy minnir svolítið á aðildarsinna á Íslandi sem  aðventunni hófu enn á ný sókn gegn krónunni á sama tíma og evrulöndin eru ráðþrota gagnvart erfiðleikum í myntsamstarfinu. 


Peningur í ESB-umsókn fer ekki í velferð

Fjármunir sem renna í tilgangslausa umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu verða ekki nýttir til að halda opnum sjúkrahúsum á landsbyggðinni eða í atvinnuleysisbætur á höfuðborgarsvæðinu. Kostnaðurinn við umsóknina hleypur á milljörðum. Ásmundur Einar Daðason þingmaður Vg gerði að umtalsefni forgangsröðum ríkisstjórnarinnar þegar hann ákvað að sitja hjá í atkvæðagreiðslu fjárlaga.

Árna Þór Sigurðssyni starfandi þingflokksformanni Vinstri grænna ferst illa að saka menn um ódrenglyndi. Árni Þór er höfuðsmiður ósvífnustu svika íslensks stjórnmálaflokks við kjósendur sína og félagsmenn. Vinstri grænir gengu til kosninga undir þeim merkjum að Íslandi væri betur borgið utan Evrópusambandsins en sveik margítrekaða stefnu um leið og færi gafst. 

Hjörleifur Guttormsson spurði um Júdasinn í þingflokki Vinstri grænna í Morgunblaðsgrein í vikunni. Árni Þór er líklegur kandídat.


mbl.is Harkaleg gagnrýni Árna Þórs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 24. desember 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband