José og Steingrímur J.

José Mourinho vann ítölsku deildina og meistaradeildina. Steingrímur J. tapaði Icesave og fékk vantraust þriggja þingmann Vinstri grænna í atkvæðagreiðslu um fjárlagafrumvarpið.

José vill verða þjálfari ársins og Steingrímur J. stjórnmálamaður ársins á Íslandi.

Hmm.


mbl.is Mourinho: Ég er þjálfari ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valdaskak, íþróttamál og brussur

Kappleikjavæðing stjórnmálaorðræðunnar er afleiðing af breytingum sem hafa orðið á stjórnmálum. Völd mæld í sigrum eru upphaf og endir á pólitík. Ólína Þorvarðardóttir þingmaður Samfylkingar gangrýndi Lilju Mósesdóttur þingmann Vinstri grænna að vera ekki góður liðsmaður og taka þátt í að byggja upp liðsheild.

Kappleikir ganga út á að vinna sigur. Stjórnmál eiga að snúast um almannahagsmuni. Þegar orð og orðasambönd úr íþróttamáli, t.d. ,,fara í manninn en ekki boltann", er það á kostað hugmynda og hugtaka sem til skamms tíma þóttu gjaldgeng í stjórnmálum, s.s. sanngirni, velferð, mennt og menning.

Málefnasinnaðir þingmenn eins og Lilja eiga undir högg að sækja en brussurnar þrífast í valdaskakinu. 


mbl.is Lilja: „Var vöruð við rætni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólagjöf útrásarafganga er þjófnaður

Magma og útrásarafgangarnir með sérdeild Íslandsbanka með í för linna ekki látunum í tilraunum sínum að stela almannaeigum. Skúffufyrirtækið Magma þykist kaupa gjaldþrota Geysi Green sem Jón Ásgeir og Hannes Smára áttu og fá þar með HS-Orku til að braska með.

HS-Orka er aðeins til á pappírunum sem hluti af gömlu Hitaveitu Suðurnesja en hinn hlutinn er HS-Veitur. Sömu starfsmenn, sama húsnæði og sömu innviðir. 

Viðrinin sem véla um í Magma-málinu senda reglulega út fréttatilkynningar um að þessum eða hinum áfanga sé náð. Jafnframt að samningar séu að nást við lífeyrissjóði um sölu á hlut í Magma.

Íslandsbanki ætti að skammast sín að taka þátt í þessu rugli.


mbl.is Kaupum Magma á HS Orku lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar í verðhjöðnun

Tvö komma fimm prósent verðbólga og á leiðinni niður veit á verðhjöðnun sem er framandi efnahagsástand hér á landi. Þroskuð iðnríki, t.d. Japan, glíma við verðhjöðnun og þykir óskemmtilegra viðfangsefni en verðbólga. Verðhjöðnun kyrkir vöxt með því að draga úr eftirspurn þar sem verðlag fer lækkandi. Minni eftirspurn þrýstir verðlagi enn frekar niður og þannig verður til vítahringur.

Íslendingar eru vanir hröðum efnahagsvexti og verðbólgu samfara. Neyslugleði landsmanna vinnur gegn verðhjöðnun þar sem væntingar um lægra verð draga ekki úr kaupákafanum. Kreppan kenndi fólki ekki að spara og halda að sér höndunum heldur sótti fólk í lífeyrissparnaðinn til að halda áfram neyslunni.

Þegar kurlin koma öll til grafar, hagstofukanínan líka, er ólíklegt að verðhjöðnun verði efnahagslegt vandamál á Íslandi.


mbl.is Hagstofukanínan heldur verðbólgunni niðri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. desember 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband