BBC: hvalveiðibann aðlögun að ESB

Hollenska þingið samþykkti í vikunni að forsenda fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið væri hvalveiðibann. Þýsk þingmannanefndi tónaði sömu afstöðu þegar hún heimsótti Ísland í vor. Þá sagði BBC síðsumars að hluti af aðlögun Íslands að Evrópusambandinu væri að banna hvalveiðar.

Officials in Brussels have warned the northern nation that if it wants to join the European Union it must give up whaling.

Hér er frétt BBC.


Grænir í Vg, hvalir og erindrekstur ESB

Árni Finnsson og fleiri grænir í Vinstri grænum telja hvalavernd mikilvægari en fullveldið. Árni fór í bandaríska sendiráðið á sínum tíma og hvatti til diplómatísks samblásturs gegn íslenskum stjórnvöldum vegna hvalveiða. Hollendingar krefjast þess að Íslendingar hætti hvalveiðum áður en við göngum í Evrópusambandið.

Ástæðan fyrir því að Hollendingar telja sig geta sett Íslandi stólinn fyrir dyrnar er að lítill öfgahópur í Vg tók höndum saman við Samfylkinguna um að senda umsókn um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Sértrúarhópar eru sniðug sirkusatriði í almennri umræðu en eiga ekki heima nærri stjórnarráðinu.


mbl.is Skilyrði að Íslendingar hætti hvalveiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur dýpkar holuna

Össuri Skarphéðinssyni má alltaf treysta til að gera illt verra, hann er þannig stjórnmálamaður. Með því að setja fram tvö skilyrði fyrir því að þingmenn teljist til stjórnarmeirihlutans, verja stjórnina vantrausti og samþykkja fjárlagafrumvarp, er Össur nánast að útiloka að þrír þingmenn Vg komi aftur til liðs við ríkisstjórnina.

Össur setur allan þingflokk Vinstri grænna í óþolandi stöðu með því að draga dár að þeim þingmönnum Vg sem greiddu atkvæði gegn yfirlýstir stefnu flokksins og eigin sannfæringu 16. júlí 2009 um að Ísland skyldi sækja um aðild að Evrópusambandinu. Jóhanna, Össur og Steingrímur J. hömuðust á þingmönnum Vg að svíkja kjósendur sína og sannfæringu því annars væri úti um stjórnarsamstarfið.

Hálfu öðru ári eftir svikin 16. júlí 2009 kemur Össur og segir að það hafi aðeins verið blaður að stjórnarslit vofðu yfir. Aðeins vantrausttillaga og fjárlög setji raunverulegan mælikvarða á stöðu stjórnarþingmanna.

 


mbl.is Þurfa að uppfylla tvö skilyrði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mölbrotin ríkisstjórn og Framsókn

Formaður þingflokks Samfylkingarinnar, Þórunn Sveinbjarnardóttir, segir ríkisstjórnina aðeins hafa 32 þingmenn á bakvið sig eftir hjásetu þriggja þingmanna Vinstri grænna við afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins. Þórunn oftelur stuðning við ríkisstjórnina í þingliði Vg. Auk Atla, Lilju og Ásmundar Daða eru Guðfríður Lilja, Jón Bjarnason og Ögmundur ekki ánægð með framferði formannsins sem lítur á sig sem upphaf og endi Vg.

Hugmyndir um að Framsóknarflokkurinn gangi til liðs við ríkisstjórnina skjóta upp kollinum vegna þess að í reynd er stjórnin í minnihluta á þingi. Ólíklegt er að Framsóknarflokkurinn gangi til liðs við ríkisstjórnina þar sem hallærisbragurinn myndi síst minnka og óvinsældir ríkisstjórnarinnar klessast við Framsóknarflokkinn.

Líkur á kosningum í vor hafa snaraukist.

 


mbl.is „Innan múra valdsins“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Háskóli Íslands auglýsingastofa ESB

Háskólar eru vígi gagnrýninnar hugsunar og fræða. Með þátttöku í fegrunaraðgerðum Evrópusambandsins hér á landi er Háskólinn orðinn að auglýsingastofu. Háskóli sem þiggur ríkisfé til framfærslu er þar með búinn að fyrirgera rétti sínum til framlaga frá almenningi.

Háskóli Íslands var stofnaður sem þjóðarháskóli. Þegar skólinn er orðinn að áróðursverkfæri Evrópusambandsins sem ásamt Samfylkingunni vill innlima Ísland í ríkjabandalagið er hann hættur að þjóna tilgangi sínum.

Hvers vegna ætti að nota almannafé til að niðurgreiða auglýsingastofu?


mbl.is HÍ gerir tilboð í ESB-kynningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. desember 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband