Miðvikudagur, 15. desember 2010
Fátæktarklám
Ókeypis framfærsla verður að vana. Þeir sem eiga pening en enga sjálfsvirðingu fara í biðröð eftir ókeypis mat og setja krónurnar í skemmtilegheit en ekki framfærslu. Á meðan einhverjir verja tíma og fjármunum til að úthluta ókeypis mat handa þeim sem þess óska ættu allir að vera ánægðir. Þeim sem gefa líður vel og þiggjendur væru líklega ekki að þessu nema af því þeir telja það sér til hagsbóta.
Leiðindin koma til sögunnar þegar biðraðir eftir mat eru sagðar vera eitthvað annað en ósk um ókeypis framfærslu.
![]() |
Aðrir voru ævareiðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 15. desember 2010
Sólheimar taka samfylkingu á stjórnina
Það er orðið opinbert sem flestir vissu: vinstrimenn misþyrma fötluðum með því að taka frá þeim þær naumu bjargir sem samfélagið hafði þó skaffað. Ríkisstjórnin lætur sér ekki nægja að stela frá skattgreiðendum heldur getur hún ekki varið þá sem höllustum fæti standa.
Samfylkingin er spunaflokkur Íslands númer eitt, tvö og þrjú. Innsta eðli Samfylkingar er spuninn.
Þegar samfylkingarfólk hrekkur í kút yfir spuna annarra finnur barnið til bragðsins.
![]() |
Þjónustu við fatlaða hætt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 15. desember 2010
Íþyngjandi fyrir Jón Ásgeir
Hádegisfréttir RÚV fluttu viðtal við Jón Ásgeir Jóhannesson fyrrum Baugsstjóra sem kvað lífsreynsluna að hafa verið dregin fyrir dóm í New York vera sér og sínum ,,íþyngjandi." Viðtalið var, note bene, ekki tekið í biðröð Fjölskylduhjálparinnar heldur millilenti Jón Ásgeir hér á ferð sinni frá London í lúxusíbúðina sem hann á í New York í boði Landsbankans.
Jón Ásgeir sagðist hafa þurft að borga á þriðja hundrað milljónir vegna málssóknarinnar og ætlar í mál við slitastjórn Glitnis og peningana endurgreidda.
Fréttamaður RÚV innti Jón Ásgeir ekki eftir því hvert þeir ættu að snúa sér sem töpuðu á viðskiptaævintýrum hans á dögum útrásar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 15. desember 2010
Ofur-Grímur og Icesave sem má hafna
Jóhanna Sig. forsætisráðherra þakkar það Steingrími J. fjármálaráðherra að ekki skall á efnahagsleg ísöld þegar þjóðin hafnaði Icesave-samkomulagi þeirra skötuhjúa í mars. Steingrímur J. hafi tryggt gjaldeyrisflæði inn í landið. Við getum andað rólega og hafnað nýjum Icesave-samningi, sem ku vera ódýrari er nemur 100 ti 400 milljörðum plús mínus, þar sem við stýri stendur Ofur-Grímur.
Jóka og Ofur-Grímur munu vitanlega láta öllum illum látum líkt og þau gerðu liðinn vetur. Það sprikl er til útflutnings, einkum á breskan markað og hollenskan.
Ofur-Grímur mun áfram sjá um innflæði gjaldeyris til landsins enda heita menn á hann til gæfta og gæfu.
![]() |
Áttum kost á Icesave-samningi í mars |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 15. desember 2010
Svíar segja nei við evru
Um 58 prósent Svía hafna því í skoðanakönnun að landið fórni krónunni fyrir evru. Innan við þriðjugur Svía er hlynntur upptöku evru. Svíar höfnuðu í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2003 að taka upp evru. Aðeins einu sinni á liðnum sjö árum hafa mælingar sýnt að Svíar hafi hug á evruvæðingu.
Rúmur helmingur Svía styður þátttökuna í Evrópusambandinu en tæpur fimmtungur er á móti aðild.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 15. desember 2010
Lýðræðishalli ESB eykst
Danski þingmaðurinn Peter Juul Larsen hvetur Evrópunefnd danska þingsins að setja á dagskrá lýðræðishallann í Evrópusambandinu. Krafan um skilvirkni við lagasetningu hefur orðið til þess að lýðræðisleg aðkoma kjörinna þingmanna áð lagasetningu Evrópusambandsins þrengist stöðugt.
Sjá nánar umfjöllun Informasjon.
(Tekið af Heimssyn.is)
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)