29 þingmenn Íraks á Íslandi

Af ástæðum sem ekki alþjóð kunnar eru 29 þingmenn Íraks á Íslandi ákafir talsmenn þess að upplýst verði hvers vegna ríkisstjórn Íslands studdi innrás sem miðaði að því að fjarlægja Saddam Hussein og valdaklíku hans sem í hjáverkum stundaði að drepa börn og konur Kúrda með gasi og svipar að því leyti til evrópsks morðingja á síðustu öld.

Þingmenn Íraks á Íslandi gætu kannski upplýst í leiðinni hversu marga dálksentímetra af greinum eða fjölda bloggafærslna þeir hafi skrifað um stjórnmál í Írak eða þjáningar Íraka fyrr og síð? Eða hve marga fundi þeir hafi staðið fyrir um málefni Íraks?

Það skyldi þó aldrei vera að þingmennirnir 29 hafi alls engan áhuga á Írak eða írösku þjóðinni en þess meiri löngun að slá pólitískar keilur á Íslandi?


mbl.is Vilja rannsaka ákvörðun um stuðning við Íraksstríð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinstrimenn: form en ekki innihald

Stefán Pálsson skrifar pistil um ógæfu vinstrimanna sem hann segir vera upptekna þessa öld hvort vinstriflokkar eigi að vera einn, tveir eða þrír. Ein ástæðan fyrir því að vinstrimenn eru uppteknir af forminu er að þeir finna ekki pólitískan tilgang.

Maður af sömu kynslóð og Stefán og félagi í Alþýðubandalaginu sagði á flokksfundi í lok síðustu aldar að vinstrimenn vissu ekki almennilega hvert þeir vildu en vissu samt að þeir ætluðu þangað saman.

Augljóst er að þeir sem  ekki vita almennilega hvert þeir ætla eru ginnkeyptir fyrir stórum altækum hugmyndum eins og Evrópusambandinu.


Samstarf á Norður-Atlantshafi

Ásamt nágrönnum sínum í austri og vestri myndar íslensk hafsvæði samfellda keðju frá Ameríku til Evrópu. Löndin fjögur Grænland, Ísland, Færeyjar og Noregur eru ekki rík af mannfjölda en búa yfir gnægð náttúruauðlinda. Jafnframt eru löndin norðurslóðaríki og eiga ríkra hagsmuna að gæta í hánorðrinu.

Samstarf Íslands við nágranna okkar er lífsnauðsyn eftir því sem mikilvægi þessa heimssvæðis eykst með betri aðgangi að norðurslóðum vegna áhrifa af hlýnun jarðar.

Í dag getur Ísland átt samstarf við nágrannaþjóðir sínar á jafnréttisgrundvelli. Ef Ísland yrði aðili að Evrópusambandinu myndu embættismenn i Brussel ákveða það samstarf á grundvelli þarfa og hagsmuna 500 milljón manna Evrópusambands.


mbl.is ESB ásælist norðurslóðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 5. nóvember 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband