ESB-RÚV í samfóplotti

Varaţingmađur Samfylkingarinnar, Baldur Ţórhallsson, fćr sérstakan vettvang í Spegli RÚV í kvöld til ađ kynda undir ófriđarbáli í Vinstri grćnum. Baldur á ekki orđ til ađ lýsa hneysklun sinni á Ögmundi í frjálslegu viđtali Speglisins er ígildi ţess ađ láta yfirlýstan vinstri grćnan fjalla um innanbúđarmál sjálfstćđismanna.

Baldur klappar Nató-steininn sem ţau Jóhanna og Össur gáfu skilabođ um ađ ćtti ađ nota gegn Vinstri grćnum.

Plott Samfylkingarinnar er ađ auka óeiningu innan Vinstri grćnna en jafnframt ađ viđra sig upp viđ Sjálfstćđisflokkinn.

Sókn Samfylkingar gegn Vinstri grćnum er skipulögđ og margra ţátta.  Steingrímur J. fékk á sig högg í morgun ţegar upplýsingum um óeđlilegar stjórnvaldsráđstafanir hans var lekiđ í Fréttablađiđ.

 


Einkamál Marinó er opinbert

Kvótaeigandi sem kćmi fram fyrir hönd eigenda kvóta á opinberum vettvangi gćti ekki gert kröfu um ađ fjölmiđlar segđu ekki frá kvótanum - jafnvel ţó eiginkonan vćri međeigandi. Marinó G. Njálsson er talsmađur hagsmunafélags ţeirra sem skulda húsnćđislán. Hann getur ekki beđist undan ţví ađ fjölmiđlar greini frá húsnćđislánum sem hann skuldar.

Almenningur á rétt á upplýsingum um persónulega hagsmuni ţeirra sem standa í opinberri baráttu um tiltekin málefni ađ ţví gefnu ađ um skörun sé ađ rćđa. Í tilfelli Marinó er skörun. Kröfur sem hann setur fram eru beintengdar persónulegum hagsmunum Marinó.

Marinó getur gert kröfu um ađ rétt sé fariđ međ hans mál í fjölmiđlum en ekki ađ fjölmiđlar ţegi.


Vg verđur pólitísk hornkerling

Vinstri grćnir eru á hrađleiđ út í horn íslenskra stjórnmála eftir ađ hafa setiđ viđ háborđiđ í tvö ár. Dómgreindarleysi forystunnar í Evrópumálum ásamt kaldastríđshélu og aulataktík stefna flokknum út í einskinsmannsland málefnafátćkar og áhrifaleysis.

Ađeins blindir menn sjá ekki ađ umsóknin um ađild Íslands ađ Evrópusambandinu er steindauđ. Hvorki ţjóđin né grunnatvinnuvegirnir vilja sjá inngöngu. Evran er viđ ađ liđast í sundur og allar fréttir nćstu ára frá ESB verđa ađildarsinnum mótdrćgar. Um helgina gátu Vinstri grćnir gefiđ umsókninni náđarhöggiđ og endurheimt tapađa ćru frá 16. júlí 2009 ţegar stór hluti ţingflokksins sveik kjósendur flokksins. 

Ein ástćđan fyrir ţví ađ flokksráđ Vg heyktist á ţví um helgina ađ endurnýja tiltrú kjósenda var ađ kaldastríđsfornaldarfólk hafđi ţau sjónarmiđ í frammi ađ andstađan viđ Evrópusambandsađild vćri komin frá sjálfstćđismönnum. Kaldastríđshatriđ lifir sjálfstćđu lífi hjá sumum innanbúđar í Vg ţótt kringumstćđur séu allar ađrar en á dögum tvíveldis kanadindla og sovétstrúbođa.

Hernađarbrölt er enn í heimi hér ţrátt fyrir lok kalda stríđsins og Nató er til sem samtök ţótt Varsjárbandalagiđ sé liđiđ undir lok. Samfylkingin veit ađ andóf gegn hernađarhyggju er samofiđ genamengi Vg. Nató og eldflaugavarnir eru samfykingarfleygur sem klýfur Vg.

Tangarsókn Samfylkingar gegn Vg snýst annars vegar um ađ taka upp mál óţćgileg Vinstri grćnum og hins vegar ađ ná talsambandi viđ Sjálfstćđisflokkinn.

Aulaskapur forystu Vg er ađ leyfa Samfylkingunni ađ taka frumkvćđiđ og stjórna umrćđunni. Vg er í vörn og hrekst fyrir veđrum og vindum. Spillingarmál sem koma upp hjá Steingrími J. veikja hann og spyrja má hvort spunaliđ Samfylkingar standi ţar á bakviđ.

Vg er orđinn laskađur stjórnmálaflokkur og efasemdir vaknađar um ţađ hvort flokkurinn sé til nokkurs nýtur međ núverandi forystu.


Samfylking tekur Nató á Vg

Bćđi Jóhanna og Össur gera sér far um ađ blása upp eldflaugaskjöld Nató gagngert í ţeim tilgangi ađ trufla heimilisfriđinn hjá Vinstri grćnum. Kratísku skötuhjúin vonast í leiđinni ađ ţau mýki sjálfstćđismenn sem yrđu tilbúnir ađ hlaupa í skarđ Vinstri grćnna.

Endatafl ríkisstjórnar Jóhönnu Sig. er hafiđ.


mbl.is VG var á móti eldflaugaskildi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Steingrímur J. mjatlar milljónum í sitt fólk

Ţađ er gott ađ eiga fjármálaráđherra úr sínu kjördćmi, eins og sést á forsíđu Fréttablađsins í dag. Eigendur međferđarheimilis fengu sérmeđferđ hjá Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráđherra og 30 milljónir króna. Tölvupóstur sem Steingrímur J. sendi félaga í spillingunni, Árna Páli ţáverandi félagsmálaráđherra, er lýsandi fyrir hugarfar nýju valdhafanna.

Sćll félagi! Ţađ er mjög ađ hitna í kolunum fyrir norđan út af samskiptum Braga/Barnaverndarstofu og Árbótarheimilisins.

Orđalagiđ ,,fyrir norđan" er lykillinn. Steingrímur J. reddar sínu fólki. Ţorvaldur Lúđvík Sigurjónsson forstjóri Sögu banka er skjólstćđingur Steingríms J. úr kjördćminu. Saga fékk sérmeđferđ hjá fjármálaráđuneytinu og var bjargađ frá gjaldţroti. Ţorvaldur Lúđvík er grunađur mađur í sakamáli er tengist Glitnis-svindli en situr áfram í stól forstjóra enda kominn i skjól fjármálaráđherra.

Valdaelítan sem er ađ koma sér fyrir í stjórnarráđinu er löđrandi í spillingu.


Bloggfćrslur 22. nóvember 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband