ESB-umsóknin komin á gjörgæslu

Vinstri grænir heykjast á því að samþykkja það sem yfirgnæfandi meirihluti flokksmanna vill, að draga umsóknina tilbaka um aðild að Evrópusambandinu, vegna þess að þar með yrðu stjórnarslit. Ályktun sem samþykkt var á flokksráðsfundi í dag staðhæfir að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins og hvetur trúnaðarmenn flokksins að halda fram þeirri stefnu. Ennfremur

Til þess að umræðan verði í reynd sanngjörn og lýðræðisleg þarf að nást sátt um skýrar leikreglur sem tryggja jafna stöðu allra sjónarmiða og nái meðal annars utan um kostnað og fjármögnun áróðursstarfsemi. Þar til þjóðin hefur tekið sína ákvörðun þarf að tryggja að ekki verði gerðar neinar breytingar á stjórnsýslunni eða íslenskum lögum í þeim eina tilgangi að laga íslenskt stjórnkerfi fyrirfram að reglum Evrópusambandsins. Ekki verði heldur tekið við styrkjum sem beinlínis eiga að undirbúa aðild. Flokksráðið hvetur til þess að svo fljótt sem unnt er verði í viðræðuferlinu látið reyna á meginhagsmuni Íslands eins og þeim er lýst í samþykkt Alþingis.

Engin aðlögun, sem sagt, engir styrkir og hömlur á áróður sem fjármagnaður er frá Brussel. Utanríkisráðuneyti Össurar og Samfylkingar getur ekki haldið áfram viðræðum við Evrópusambandið á þeim forsendum sem boðið er upp á í Brussel, þ.e. aðlögun.

Hótun um stjórnarslit heldur lífi í umsókninni en hún er engu að síður komin á gjörgæslu.


Atkvæði um ríkisstjórn hjá Vinstri grænum

Forysta Vinstri grænna þurfti að fá sérstaka stuðningsyfirlýsingu til að halda áfram ríkisstjórnarsamstarfi. Flokkurinn er í fyrsta sinn í sögu sinni í ríkisstjórn, kjörtímabilið er ekki hálfnað, og forystan þarf að biðja um blessun flokksmanna að halda áfram.

Hvorki almennir flokksmenn né kjósendur Vinstri grænna eru ánægðir með þátttöku flokksins í feigðarför Össurar til Brussel. 

Á fundinum fékk forysta flokksins takmarkað umboð til að sitja áfram í umsóknarríkisstjórninni. Hvorki stendur til að taka þátt í aðlöguninni né að þiggja styrki frá Evrópusambandinu.

Það verður fylgst með því hvernig ráðherrar flokksins fara með samþykktir flokksráðsins.


mbl.is „Ótvíræður stuðningur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valdastjórnmál sigra hugsjónir

Flokksráð Vinstri grænna staðfestir að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins. Flokksráðið hafnar aðlögunarferli Íslands að Evrópusambandinu. Á hinn bóginn heykist flokkráðið á því að krefjast þess að aðildarviðræður verið stöðvaðar.

Borgarastyrjöldin um fullveldið heldur áfram.


mbl.is ESB tillaga felld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorsteinn hótar að kljúfa Sjálfstæðisflokkinn

Þorsteinn Pálsson fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins hótar að kljúfa flokkinn ef ekki verður breyting á afstöðu sjálfstæðismanna til aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Þorsteinn gekk í þjónustu Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra og situr í samninganefnd Íslands eftir að hafa starfað í þágu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar sem ritstjóri Fréttablaðsins.

Þorsteinn hefur fastan dálk á leiðaraopnu Fréttablaðsins og skrifar í dag um stöðu aðildarumsóknarinnar. Þorsteinn vill að Sjálfstæðisflokkurinn leggi Samfylkingunni lið við að koma Ísalandi í Evrópusambandið. Ef ekki sé líklegt að aðildarsinnar úr röðum sjálfstæðismanna muni bjóða fram sérlista við næstu kosningar.

Hér hefur um skeið verið tómarúm á hægri vængnum að þessu leyti. Líklegt er að það tómarúm muni fyllast fyrir næstu kosningar. Þar liggur sóknarfæri fyrir Sjálfstæðisflokkinn, standi vilji til að nýta það.

Þorsteinn hélt fund í Valhöll í síðustu viku til að ræða umsóknina. Benti hann m.a. á þau rök fyrir inngöngu í Evrópusambandið að tollafgreiðslukerfi ESB væri eftirsóknarvert.


Bloggfærslur 20. nóvember 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband