Þriðjudagur, 2. nóvember 2010
Össur stjórnar Icesave-viðræðum
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra er kominn í ökumannssætið Icesave-viðræðunum og búinn að ýta Steingrími J. fjármálaráðherra til hliðar. Össur segir viðræðurnar á viðkvæmu stigi og auðvitað þarf hann að gefa yfirlýsingu um framvinduna ákkúrat á því augnabliki.
Eins og alþjóð veit er Össur ekki eins og fíll í postulínsbúð heldur maður nærgætninnar.
Hvað varð annars um myndugleik Steingríms J.?
![]() |
Lausn Icesave fyrir lok árs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þriðjudagur, 2. nóvember 2010
Þjóðstjórn: rusl batnar ekki við aukið magn
Hugmyndir um þjóðstjórn allra flokka er samsæri gegn almenningi. Þjóðin vill ná í skottið á spilltum stjórnmálamönnum í kosningum. Ef svar stjórnmálamanna er að rotta sig saman í þjóðstjórn er almenningi sýndur fingurinn.
Eina rökrétta afleiðingin af lögmætiskreppu stjórnmálastéttarinnar er kosningar.
Skynsamasta leiðin er að ríkisstjórn Jóhönnu Sig. segi af sér og starfsstjórn Vinstri grænna taki við í þrjá til fimm mánuði en þá verði kosið til alþingis.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 2. nóvember 2010
Aðlögunin og Sverrir Jakobs
Sverrir Jakobsson skrifar grein í Fréttablaðið í dag þar sem hann ber í bætifláka fyrir misráðna stefnu forystu Vinstri grænna um að fallast á að senda umsókn um aðild að Evrópusambandinu þrátt fyrir yfirlýsta stefnu Vg um að Íslandi sé betur borgið utan ESB. Kjarninn í afsökun Sverris er að Íslendingar fái að greið þjóðaratkvæði um samning í lokin. Til viðbótar líkir hann umsókn Íslands við umsókn Noregs fyrir fimmtán árum. Fyrra atriðið er hálfsannleikur og það síðara ósannindi.
Á vef utanríkisráðuneytisins er pdf-skjal sem útskýrir ferlið. Í skjali ráðuneytisins kemur fram að áður en Íslendingar fá tækifæri til að greiða atkvæði um aðildarsamning hefur eftirfarandi gerst:
a) Ísland hefur aðlagað stjórnsýsluna lögum og reglum ESB
b) Leiðtogaráð ESB hefur samþykkt samninginn og Evrópuþingið sömuleiðis
c) Aðildarsamningur hefur verið undirritaður af öllum aðildarríkjum ESB og Íslandi
Augljóst er af ferlinu að þjóðaratkvæðið er hugsað sem hátíðleg athöfn þar sem þjóðin staðfestir gjörðir stjórnvalda enda hafa stjórnvöld unnið í samræmi við yfirlýstan vilja þings og þjóðar. Eins og alþjóð veit er því ekki að heilsa á Íslandi.
Þá eru það ósannindin um að umsókn Íslands sé í einhverju hliðstæð umsókn Noregs fyrir 15 árum. Um aldamótin breytti Evrópusambandið reglum um upptöku nýrra ríkja. Það var gert vegna þess að Austur-Evrópuríkin sem knúðu dyra bjuggu ekki að stofnanakerfi lýðræðisþjóða. ,,Accession process" eða aðlögunarferli var tekið upp sem þýðir að Evrópusambandið ætlast til að umsóknarríki taki jafnt og þétt upp lög sambandsins samhliða viðræðum.
Evrópusambandið býður ekki upp á óskuldbindandi viðræður, aðeins aðlögun sem felur í sér að umsóknarríki tekur jafnt og þétt upp lög og regluverk sambandsins, samtals 90 þúsund blaðsíður. Í útgáfu Evrópusambandsins segir ótvírætt hvað aðlögun felur í sér.
First, it is important to underline that the term negotiation can be misleading. Accession negotiations focus on the conditions and timing of the candidates adoption, implementation and application of EU rules some 90,000 pages of them. And these rules (also known as acquis, French for that which has been agreed) are not negotiable. (bls. 9, annar dálkur).
Sverrir verður að horfast í augu við staðreyndir málsins. Ísland er í aðlögunarferli að Evrópusambandinu á ábyrgð Vinstri grænna. Þjóðaratkvæðagreiðsla í lok aðlögunarferlis er eins og að bjóða getnaðarvörn eftir níu mánuði.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þriðjudagur, 2. nóvember 2010
Þjóðin þekkir loddarana og segir nei takk
Mánuðinn sem skoðanakönnun var gerð sem sýndi 70 prósent andstöðu við ríkisstjórnina var Samfylkingin í fundarherferð um landið. Þingmenn fór vítt og breitt til að hitta baklandið sitt. Stórmál Samfylkingarinnar, umsóknin um aðild að Evrópusambandinu, var sérstaklega kynnt með innflutningi á evrópskum stórvesírum og Össur sendi embættismenn utanríkisráðuneytisins á almenna pólitíska fundi til að tala fyrir umsókninni.
Þjóðin hafi sem sagt loddaragengið fyrir augum sér þegar hún ákvað, sjö af tíu, að lýsa andstöðu við ríkisstjórnina og gera Samfylkinguna að 19 prósent flokki.
Samfylkingarráðherrar segjast ætla að hlusta á þjóðina. Jæja, ef svo er, eiga þeir að segja af sér. Þjóðin vill ekki þessa ríkisstjórn.
![]() |
Vill endurskoðun á niðurskurði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)