Hjarta og sál Vg á móti ESB

Vinstri grænir standa fyrir hefð í íslenskum stjórnmálum sem metur fullveldið ofar flestu öðru. Sú sannfæring býr að baki að án fullveldis er daglaunastritið í þágu annars en þjóðarinnar sjálfrar. Forysta Vg reynir að selja flokkmönnum baunadisk vinstristjórnar til að kaupa aðlögunarfrið við Samfylkinguna.

Valdaþorsti flokksforystunnar eykur ekki matarlyst hins almenna flokksfélaga á baunadiski með samfylkingarkryddi.

Vinstristjórn sem afsalar fullveldi landsins til Evrópusambandsins er einskins virði.


mbl.is VG tekst á um ESB-inngöngu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin viðurkennir einangrun

Fattljósið kviknar hjá Samfylkingunni um síðir. Evrópustefna flokksins er helvegur rúins trausts og smáflokkafylgis. Í kvöld er fundur hjá höfuðsstöðvum flokksins þar sem spurt er hvort Samfylkingin eða Jón Bjarnason stjórni umræðunni. Bjarni Harðarson gerir stólpagrín að fundinum þar sem Baldur nokkur Þórhallsson varaþingmaður Samfylkingar  og prófessor opnar naflaskoðunina.

Samfylkingin þarf svona eina til tvær skoðanakannanir í viðbót til að átta sig á að ef ekki verður brugðist við í tíma grefur flokkurinn sér djúpa holu og morknar þar. 

Eins og kom fram fyrr í dag stendur valið á milli þess að Samfylkingin fórni Evrópustefnunni og Össuri með eða að ríkisstjórnin fjúki.


Krítík í stað baugsblaðamennsku

Baugsblaðamennska er að selja sál sína auðdólgi og svíkja grunngildi blaðamennskunnar að hafa það sem sannara reynist og starfa í almannaþágu. Gunnar Smári Egilsson, Sigurjón bróðir hans og Reynir Traustason eru meðal þekktustu iðkenda baugsblaðamennskunnar. Háborg þessarar gerðar blaðamennsku er 365 miðlar sem slúðrað er um að séu til sölu, þótt enginn skyldi veðja á það.

Jón Ásgeir Jóhannesson Baugsstjóri fjármagnaði baugsblaðamennskuna enda var hún rekin í hans þágu og viðskiptaspillingarinnar sem þreifst í kringum hann.

Dauði baugsblaðamennskunnar er löngu tímabær. Hugsjónir um blaðamennsku lifa og hópur fólks sem kennir sig við krítík lofar góðu.


Össur eða ríkisstjórnin

Umsóknarörvænting Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra eykst með hverju nýju útspili. Skósveinn hans, Þorsteinn Pálsson fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins, fór í hraksmánarlega för til Valhallar að boða fagnaðarerindið um Evrópusambandið: tollafgreiðslukerfi sambandsins eru rök fyrir inngöngu.

Þorsteinn Pálsson nýtur einskins trúnaðar í Sjálfstæðisflokknum eftir að hann gekk Jóni Ágeiri og Baugsveldinu á hönd á tímum útrásar. Dómgreindarleysi Össurar að beita manni með orðspor Þorsteins fyrir ESB-vagninn mælist í gígabætum.

Samfylkingarhluti ríkisstjórnarinnar er rökþrota í umræðunni um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Evrópa stendur báli gjaldþrota evru-ríkja og allar sambandsfréttir úr álfunni verða merktar hörmungum næstu tvö til fjögur árin. Snautlegar röksemdir um inngöngu vegna tollafgreiðslukerfa eða einhvers annars tittlingaskíts afhjúpa himinhrópandi getuleysi að útskýra hvers vegna Ísland ætti að afhenda fullveldi og forræði sinna mála til félagsskapar meginlandsríkja Evrópu.

Samfylkingin getur ekki öllu lengur átt aðild að ríkisstjórn Íslands þegar búið er að kippa fótunum undan helstu ástæðunni fyrir ríkisstjórnarmynduninni. Samfylkingin hafði eitt mál: umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Eina leiðin sem er fær ríkisstjórninni er að Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og aðalábyrgðarmaður á misheppnaðri Evrópustefnu víki sæti.

Valið stendur um líf ríkisstjórnarinnar og ráðherradóms Össurar.


Bófi biðst vægðar

Auðmannaklíkan sem stundaði svindl og eyðilagði samfélagsinnviði undir formerkjum útrásar telur sig hafa hreinan skjöld og að glæparannsóknir á athöfnum þeirra séu sprottnar af illu hvötum. Jón Ásgeir Jóhannesson kenndur við Baug er hvað þekktastur auðdólganna.

Viðskiptavild Jóns Ásgeirs var byggð á mútufé annars vegar og hins vegar hótunum um að beita dagskrárvaldi fjölmiðla til að ráðast á æru þeirra sem stóðu gegn yfirgangi hans.

Jón Ásgeir var óvandur að meðölum en æmtir þegar endurreisn laga og reglna hittir hann fyrir. Samfélagið þarf að ganga svo frá málum að Jón Ásgeir og hans nótar fái hvergi frið til að endurvekja bófasiðferði í viðskiptum. 

 


mbl.is Yfirheyrðir fram á kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. nóvember 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband