Þriðjudagur, 16. nóvember 2010
Aularök Þorsteins Pálssonar
Samlíking Þorsteins Pálssonar á upplýsingum um ESB annars vegar og hins vegar forvirkum rannsóknaraðferðum er aulaleg í besta falli. Efni og umræða um Evrópusambandið er til á óteljandi vefsetrum og öðrum fjölmiðlum. Forvirkar rannsóknaraðferðir eru sérúrræði lögreglu og afkimaumræða. Samlíkingin sýnir inn í ruglheim helsta sjálfstæðismannsins úr röðum aðildarsinna.
Ógrynni upplýsinga liggja fyrir um Evrópusambandið. Þeir sem nenna kynna sér þær. Þorsteinn og aðildarsinnar reyna að telja fólki trú um að upplýsingar sem fást með mútuferðum til Brussel eða í aðildarviðræðum bæti einhverju við um það sem þekkt er og vitað um Evrópusambandið.
Í kjánaheimi Þorsteins og félaga mun Evrópusambandið breytast í veigamiklum atriðum við inngöngu Íslands. Við eigum sem sagt að trúa því að samband 500 milljóna Evrópubúa breytist við að 300 þúsund Íslendingar gangi inn.
![]() |
Eiga ekki að hræðast upplýsingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 16. nóvember 2010
Þorsteinn skilur Össur eftir í snörunni
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra handvaldi Þorstein Pálsson fyrrum formann Sjálfstæðisflokksins til að taka sæti í viðræðunefnd Össurar vegna aðlögunarferlis Íslands í Evrópusambandið. Þorsteinn átti að byggja brú mill Samfylkingar og aðildarsinna í Sjálfstæðisflokknum.
Orð Þorsteins um að ríkisstjórnin hafi ekki bolmagn til að ljúka aðlögunarferlinu staðfestir einangrun Samfylkingarinnar í íslenskri pólitík.
Össur Skarphéðinsson og feigðarförin til Brussel eru gangandi pólitískt stórslys á vinstri væng stjórnmálanna. Það mun fljótlega renna upp fyrir samfylkingarfólki að til að ná vígstöðu á ný þarf að fórna umsókninni og Össuri með. Samfylkingin fórnaði Ingibjörgu Sólrúnu fyrir minni sakir.
![]() |
Efast um að stjórnin geti lokið viðræðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 16. nóvember 2010
Vinstri græn, aðlögunin og næstu kosningar
Aðildarsinnar vilja ekki lengur hraðferð inn í Evrópusambandið vegna þess hversu andstaðan við aðild er öflug. Engar líkur eru á því að aðlögunarferlinu ljúki á kjörtímabili ríkisstjórnar Vg og Samfylkingar. Það þýðir, verði ekkert að gert, að Vg mun heyja kosningabaráttu í skugga aðlögunar og yfirvofandi innlimunar Íslands í Evrópusambandið.
Forysta Vinstri grænna getur ekki komið í næstu kosningabaráttu með þann boðskap að flokkurinn standi vörð um fullveldi Íslands og telji hagsmunum okkar betur borgið utan Evrópusambandsins - ef aðlögun Íslands heldur áfram. Almenningur gerir einfaldlega aðrar kröfur til Vinstri grænna en Besta flokksins.
Vinstri grænir verða í útrýmingarhættu við næstu kosningar. Vinstri græn hleyptu aðlögunarferlinu af stað og beygðu sig fyrir ofríki Samfylkingar. Eini kostur flokksins er að bæta fyrir mistökin vorið 2009 með því að tryggja að umsóknin verði dregin tilbaka.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 16. nóvember 2010
Sverrir í vörn fyrir pólitískan þjófnað
Stjórnmálaflokkar eru á opinberu framfæri og þjóna því hlutverki í samfélaginu að bjóða fram pólitíska valkosti. Trúnaður við almenning er höfuðskylda stjórnmálaflokka. Kjarnaatriði trúnaðarins er að stjórnmálaflokkur segi það sem hann meinar og meini það sem hann segi.
Vinstrihreyfingin grænt framboð sagðist við síðustu kosningar vera á móti aðild Íslands að Evrópusambandinu. Frambjóðendur flokksins tónuðu þetta stef á framboðsfundum og formaðurinn tók sérstaklega fram að Vinstri grænir væri ,,stefnufastur" flokkur.
Eftir kosningar brá svo við að forysta Vinstri grænna gerði samkomulag við Samfylkinguna um að ríkisstjórnarmeirihluti þessara tveggja flokka skyldi standa að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu.
Samkomulag Vinstri grænna við Samfylkinguna um að styðja aðildarumsókn Íslands er pólitískur þjófnaður sem þverbrýtur höfuðskyldu stjórnmálaflokks en það er trúnaður við almenning.
Sverrir Jakobsson sagnfræðingur skrifar grein í Fréttablaðið í dag þar sem hann reynir að verja pólitískan þjófnað forystu Vinstri grænna með því að segja að ,,grasrót" flokksins hafi blessað þjófnaðinn.
Vinstri grænir sóttu umboð sitt til almennra kjósenda í þingkosningum. ,,Grasrót" flokksins hefði skilað framboðinu tveim til þrem þingmönnum. Samband ,,grasrótar" og forystu flokks er með ýmsum hætti en hvort sem ,,grasrótin" er meðvirk forystunni eða veitir henni aðhald getur engin ,,grasrót" verið forystu skálkaskjól fyrir trúnaðarbrot gagnvart almenningi.
Yfirþyrmandi tækifærismennsku sína undirstrikar Sverrir með því að spyrja gagnrýnendur innan flokksins með þjósti hvort þeir vilji að ríkisstjórnin falli. Fyrir það fyrsta getur ríkisstjórn sem mynduð er með pólitískum þjófnaði ekki vænst langra lífdaga. Í öðru lagi er spurningin um aðild Íslands að Evrópusambandinu mikilvægari en svo að muni einni ríkisstjórn til eða frá.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)