Þýskaland gæti sagt upp evrunni

Einn virtasti hagfræðingur í heimi, Joseph Stiglitz, telur framtíð evrunnar í uppnámi og að evrópskt hagkerfi verði lengi að koma sér upp úr kreppunni. Varnaðarorðin lætur Stiglitz falla í endurútgáfu bókarinnar Freefall, sem fjallar um kreppuna sem hófst með undirmálslánum í Bandaríkjunum.

Stiglitz er nóbelsverðlaunahafi í hagfræði og var um tíma aðalhagfræðingur Alþjóðabankans. Hann varar við því að spákaupmenn muni næst ráðast á Spán sem er eitt af stærri þjóðarhagkerfum Evrópusambandsins.

Evran þjónar ekki hagsmunum þeirra ríkja sem glíma við viðskiptahalla og skuldir. ,,Þjóðir sem deila sameiginlegum gjaldmiðli gefa frá sér sveigjanleika til að takast á við efnahagslægðir," er haft eftir Stiglitz í Telegraph.

Vegna stöðu ríkja eins og Írlands, Portúgal og Grikklands verður þrýstingur á evruna ef til vill meiri en myntsvæðið þolir. Stiglitz telur að jafnvel komi til greina að Þýskaland segi sig úr evru-samstarfinu og taki upp þýska markið. Í því tilviki myndi evran falla til samræmis við þarfir ríkja með stóran viðskiptahalla og veika samkeppnisstöðu.

(Textinn er af vef Heimssýnar)


Geir H. er samfylkingarsekur

Samfylkingarsekt er nýtt hugtak í opinberri umræðu og runnið undan rifjum þingflokks Samfylkingarinnar sem ákvað að Geir H. Haarde skyldi bera sök hrunráðherra Samfylkingarinnar. Samfylkingarsekt er að klína eigin sök á annan.

Forysta Samfylkingar kann þá list betur en flestir að kenna öðrum um eigin misgjörðir. Samfylkingin braut auðmönnum leið til áhrifa í íslensku samfélagi með því að gerast sérstakur talsmaður og málssvari óhefluðustu auðmannanna s.s. Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Á alþingi gerði Samfylkingin úti um möguleika ríkisvaldsins til að koma böndum á yfirgang auðmanna með því að stöðva fjölmiðlafrumvarpið vorið 2004. Samfylkingin kennir svo Davíð Oddssyni um að hafa komið auðmönnum til vegs og valda.

Menn geta borið samfylkingarsekt með reisn.

 


mbl.is Ekki sekur frekar en Brown eða Bush
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Falsið á bakvið reiðina

Falska fólkið í samfélaginu reynir að gera sér mat úr ríkjandi reiði. Fólk sem hefur verið með allt niðrum sig um árabil stekkur fram og segist fórnarlömb kreppunnar. Það er ekki einfalt að vinsa rugludallana úr röðum heiðarlegs fólks sem orðið hefur fyrir barðinu á hruninu og á réttmæta kröfu á leiðréttingu.

Í pólitíkinni er á hinn bóginn auðvelt að sigta út falska liðið. Auðrónadeild Sjálfstæðisflokksins fylkti sér á bakvið málstað Geirs H. Haarde þegar hann var ákærður fyrir vanrækslu. Kjarni auðrónadeildarinnar eru sjálfstæðismenn sem störfuðu beint eða óbeint fyrir auðmennina; Þorsteinn Pálsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Ólafur Stephensen, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Árni Sigfússon og Þór Sigfússon.

Geir H. Haarde er kominn fyrir landsdóm vegna þess að hér varð hrun. Stjórnvöld vanræktu skyldur sínar að verja almannahag, m.a. vegna þess að auðmenn áttu meðhlaupara í röðum auðrónadeildar Sjálfstæðisflokksins. Ástæðan fyrir því að hann er einn ákærður er sú að bestu vinir auðrónadeildar sjálfstæðismanna, þingmenn Samfylkingar, slógu upp skjaldborg fyrir oddvita og ráðherra Samfylkingarinnar.

Reiði auðrónadeildar Sjálfstæðisflokksins beinist ekki að tvöfeldni þingmanna Samfylkingarinnar, sem samþykktu kærur á Geir en höfnuðu að kæra Ingibjörgu Sólrúnu og Björgvin G., heldur að Vinstrihreyfingunni grænu framboði fyrir að standa að ákærunum.

Auðrónadeildin kann ekki að skammast sín. 


Bloggfærslur 3. október 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband