Trú, von og kjaftæði

Ruglvæðing Reykjavíkurborgar með trúðum úr Besta flokknum og imbum úr Samfylkingu er rökrétt framhald af hruni. Þegar meginstoðir hrynja, eins og efnahagur Íslands og móðurflokkur íslenskra stjórnmála, Sjálfstæðisflokkurinn, taka fíflin til máls.

Almenningur leyfir eðjótunum að eiga sínar fimmtán sekúndur af frægð áður en þeim verður varpað út í ystu myrkur.

Samfélag er seigfljótandi massi sem tekur aðeins breytingum yfir langan tíma, mælt í áratugum og öldum. Kjánaprikin í mannréttindanefnd Reykjavíkurborgar halda að glassúr komi í stað kjarna, tattú í stað innihalds.

Það styttist í að fullorðnum leiðist fíflagangurinn.

 


mbl.is Vegið að rótum trúarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forystukreppa hjá Vinstri grænum

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vg sagði skilið við þorra félagsmanna flokksins á málefnaþingi um utanríkismál um helgina. Afgerandi meirihluti flokksmanna vill draga umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu tilbaka. Ekki aðeins hefur formaðurinn sagt skilið við flokksmenn heldur veruleikann sjálfan.

Á Eyjunni er gert grín að Steingrími J. sem fyrir fimm árum sagði að engin þjóð sækti um aðild að Evrópusambandinu nema að ætla sér að ganga inn. Í dag segir sami stjórnmálamaður að það sé fyllilega í lagi að sækja um aðild að Evrópusambandinu með þann eindregna ásetning að ætla ekki að ganga inn.

Eftir því var tekið hve fámennt málefnaþing Vg var um helgina. Eftir að það var gefið út að ekki yrði ályktað um ESB-mál nennti fólk ekki að mæta. 100 flokksmenn sendu áskorun um að undið yrði ofan af Brusselleiðangrinum en sátu samt flestir heima því skipulag fundarins leyfði ekki að ályktað yrði um málið. Flokksdeyfð einkennir Vg um þessar mundir, á fund ungliðahreyfingarinnar í Reykjavík fyrir tveim vikum mættu fimmtán manns.

Flokksdeyfð í baráttuflokki eins og Vg er upphaf að dauða flokksins. Trúnaðarmenn flokksins á alþingi og sveitarstjórnum hafa aðeins um tvo kosti að velja. Að skipta út veruleikafirrtum formanni eða horfa upp á hægfara dauða Vg.


90 prósent Sterkara Ísland

Formaður félags aðildarsinna á Íslandi, Sterkara Íslands, heitir Jón Steindór Valdimarsson. Í Kastljósþætti fimmtudaginn síðastliðinn 21. október fullyrti Jón Steindór að 90 prósent af lögum og reglugerðum sem Ísland þarf að taka upp í aðlögunarferlinu að Evrópusambandinu bæti stjórnsýsluna hér heima.

Í samantekt sem Evrópusambandið gaf út um aðlögunarferli segir berum orðum að umsóknarþjóðir eigi að taka upp 90 þúsund blaðsíður af regluverki.

First, it is important to underline that the term “negotiation” can be misleading. Accession negotiations focus on the conditions and timing of the candidate’s adoption, implementation and application of EU rules – some 90,000 pages of them. And these rules (also known as “acquis”, French for “that which has been agreed”) are not negotiable. (bls. 9, annar dálkur).

Samheitið ,,acquis" er notað um regluverk ESB. Jón Steindór telur 90 prósent af 90 þúsund blaðsíðna regluverki ESB bæta íslenska stjórnsýslu.

Líklega er þess skammt að bíða að Jón Steindór upplýsi um þær rúmu 80 þúsund blaðsíður af lögum og reglum ESB er bæti íslenska stjórnsýslu. Leiðarstef Sterkara Íslands er að beita staðreyndum og forðast gífuryrði.

Koma svo Jón Steindór.

 


Bloggfærslur 24. október 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband