Spretthlaupið sem ríkisstjórnin tapar

Ríkisstjórnin og mótmælendur við Austurvöll eru í kapphlaupi um hver skilgreinir stöðuna í íslenskri pólitík. Fyrirfram, ef horft er á liðsuppstillingu, er ríkisstjórnin með óendanlega mikið forskot. Í ríkisstjórn situr fólk hokið reynslu, Jóhanna Sig. Össur og Steingrímur J. Þau hafa hvert um sig alla burði til að skilgreina stöðuna. En þau bara geta það ekki, eru klúless eins og álfur út úr hól.

Á hinn bóginn er mótmælahreyfingin sem er sjálfsprottin og veit ekki í hvorn fótinn hún á að stíga. Veit þó eitt fyrir víst; það er skítalykt af alþingi og þeir sem þar sitja eru betur komnir annars staðar.

Spretthlaupið um skilgreininguna er dæmt til að fara á einn veg. Mótmælendur sigra. Spurningin er aðeins hvort það verður fyrir eða eftir áramót.


mbl.is Óánægja vegna skuldavanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin ónæm fyrir mótmælum

Samfylkingin er ósakhæf fyrir landsdómi og nú lýsir þingmaður flokksins því yfir að Samfylkingin sé ónæm fyrir  mótmælum. Samfylkingin er flokkur sem telur sig hafinn yfir lögin í landinu og jafnframt hafin yfir almenning.

Dæmigerður Samfylkingarþingmaður er valdatæknir án samvisku.


mbl.is „Ekki til farsælda ef reiðin ræður för“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólafur Ragnar hraunar yfir ESB-Samfó

Ávarp forseta lýðveldisins við þingsetningu var samfelld árás á allt það sem Samfylkingin stendur fyrir í pólitík. Ekki nóg með að hann ræddi mest um utanríkissamskipti við Rússa og Kínverja og sterka landapólitíska stöðu Íslands heldur klykkti hann út með kröfu til þingmanna að sýna samstöðu.

Þjóðarviljinn á að ráða för, sagði forsetinn. Engum þarf að dyljast að Ólafur Ragnar telur þingvilja í engu samræmi við þjóðarvilja.


mbl.is Reyndi á grundvöll stjórnskipunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snilld eða klúður hjá RÚV?

Snemma í hádegisfréttum RÚV var viðtal við Össur Skarphéðinsson sem kannaðist ekki við neinar innbyrðis deilur í Samfylkingunni vegna afgreiðslu þingflokksins á tillögum Atlanefndar. Síðar í sama fréttatíma var haft eftir fyrrum aðstoðarmanni Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra hrunstjórnar að hann hefði sagt sig úr Samfylkingunni. Ástæðan: Innanflokksátök vegna afgreiðslu þingflokks Samfylkingar á tillögum Atlanefndar.

 

 


Bankar derra sig í skjóli vinstristjórnar

Byr sparisjóður er dautt útrásargóss sem ekki er í neinum tengslum við samfélagið enda gagngert stofnaður til að svíkja og svindla með. Byr er alfarið í eigu og á ábyrgð ríkisstjórnarinnar. Í fyrradag lagði bankastjóri annars ríkisbanka, Landsbankans, til sameiningu við Byr. Hvað segir Byr-stjórinn? Nei, takk, ég hef ekki áhuga á sameiningu.

Slappleiki vinstristjórnarinnar gagnvart bankakerfinu er annað tveggja átakanlegt dæmi um sljóleika á fjármálastarfsemi eða einbeittur vilji til að koma upp svikabatterí á ríkisframfæri, þangað sem hægt er að senda soltnar bitlingahjarðir vinstriflokkana.

Að halda lífi í Byr er sambærilegt við gera Jón Ásgeir að heiðursfélaga Viðskiptaráðs. 


mbl.is Bankamenn fimmtungi of margir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Masókismi, Ísland og Írland

Írland er í Evrópusambandinu og er með evru. Írland er í kreppu þar sem valið stendur um að fórna þjóðinni til að bjarga bönkunum eða fara íslensku leiðina og láta bankana róa. Írland gat ekki og þorði ekki að fara íslensku leiðina vegna þess að Brusselvaldið lítur það ekki hýru auga þegar fjármálastofnanir tapa peningum.

Gærdagurinn var kallaður svarti fimmtudagurinn en dagarnir eiga eftir að verða margir svartir á næstunni á eyjunni grænu.

Írska stjórnin er í afneitun og segist betur sett með evru en án. Til að segja slíkt þarf sérkennilega masókíska hneigð, skrifar fjármálablaðamaðurinn Jeremy Warner.


mbl.is Írland í betri málum en Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. október 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband