Endurreisnin er ekki um krónur og aura

Ýkjustrókurinn stóð upp úr ríkisstjórninni um að neitun forseta á staðfestingu Icesave-frumvarps myndi leiða til þess að ,,endurreisninni" yrði slegið á frest. Stjórnvöld tala reglulega um að endurreisnin eigi að hafa forgang og hana megi ekki tefja.

Endurreisnin er hvergi útskýrð og er hugtakið nánast safnliður fyrir hugmyndir og pælingar um hvernig land við viljum byggja eftir útrásaráratuginn. Kjarni endurreisnarinnar hlýtur að vera um gildismat og siðferði og hvernig samfélag við viljum búa okkur.

Sjórnvöld halda að endurreisnin sé um krónur og aura. Óðara og fréttist af neitun forseta ræddu stjórnvöld um lánalínur sem myndu lokast. Er það í stíl við línuna sem gefni var frá forsætisráðuneytinu, um að saman væri hvaðan gott kæmi, þegar væntanleg lög handa gagnaveri Björgólfs Thors voru til umræðu.

Sjórnin á að skapa skilyrði til að þjóðin fái tækifæri til að  endurreisa sjálfa sig. Hún á að sjá um að kerfi virki; s.s. heilsugæsla, bankar, dómstólar, menntastofnanir og svo framvegis. 

Og stjórnin á að sjá til þess að þjóðin verði ekki gjaldþrota; þess vegna átti hún aldrei að samþykkja Icesave-skuldbindingarnar á forsendum Breta og Hollendinga. 


Beygður ráðherra virkar ekki í útlöndum

Steingrímur J. er samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar ekki starfhæfur ráðherra. Ríkisstjórnin lofaði Bretum og Hollendingum niðurstöðu sem hún gat ekki staðið við vegna mótmæla almennings. Í Kastljósviðtalinu var fjármálaráðherra eins og skopparahringla. Hann ýmist málaði skrattann á vegginn eða hvatti til bjartsýni. Ýmist ætlaði hann að standa og falla með Icesave-frumvarpinu eða ekki. Kannski verður þjóðaratkvæði eða ekki.

Til að toppa vitleysuna ætlar Steingrímur J. til útlanda. Til hvurs, með leyfi? Hvaða erindi á beygður ráðherra og flæktur í eigin mótsagnir í útlend stjórnarráð?

Sterkasti ráðherra ríkisstjórnarinnar er fallinn með Steingrími J. og þar með ættu flestir sæmilega lesandi að sjá skriftina á veggnum.


mbl.is Ákvörðun forsetans vonbrigði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimarík en lyppast niður erlendis

Stjórnin er heimaríkur hundur sem lyppast niður þegar komið er utan túnfótar. Æðibunugangur Samfylkingar að sækja um aðild að Evrópusambandinu kom okkur í koll í samningaviðræðum við Breta og Hollendinga um Icesave. Þeir tölu sig geta sett stífar kröfur vegna þess að heimapólitísk staða Samfylkingar leyfði ekki að þröskuldar yrðu á vegi umsókarhraðlestarinnar til Brussel.

Ríkisstjórn Jóhönnu situr í óþökk meirihluta landsmanna og eyðileggur möguleika okkar á að semja upp á nýtt við Breta og Hollendinga. Stjórnarkreppa er alþjóðleg aðferð til að lýsa endalokum tiltekinnar stjórnarstefnu. Við þurfum slíka niðurstöðu.

Eftir að við fellum Icesave-frumvarp ríkisstjórnarinnar verður stjórnin hvort eð er að víkja. 


mbl.is Staða Íslands væri stórlöskuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. janúar 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband