Landbúnaður er málið í ESB

Um fjörtíu prósent af fjárlögum Evrópusambandsins taka til landbúnaðarmála. Landbúnaðarstefnan, CAP, er langstærsti einstaki þátturinn í starfsemi Evrópusambandsins. Rætur stefnunnar liggja til eftirstríðsáranna þegar matarskortur var í álfunni.

Landbúnaðarstefnan tekur til framleiðslu og markaðssetningu landbúnaðarafurða. Á síðari árum eru byggðamál fléttuð saman við landbúnaðarstefnuna. Samkvæmt könnun ESB telja nær níu af hverjum tíu Evrópubúum landbúnað og dreifbýli skipa veigamikinn sess í framtíð álfunnar.

Þrátt fyrir að landbúnaðarstefnan hafi lengi verið umdeild, m.a. vegna spillingar sem þrífst í skjóli hennar, er breiður stuðningur við landbúnaðarstefnuna í ríkjum sambandsins.

Hér er samantekt um viðhorf íbúa ESB til landbúnaðarstefnunnar.


Svikamylla 365 og Haga

Arion banki á Haga en leyfir Jóni Ásgeir Jóhannessyni og föður hans að reka matvörukeðjuna. Jón Ásgeir sölsaði undir sig 365 miðlum, Fréttablaðinu og Stöð 2, með kafbátaviðskiptum rétt eftir hrun. Feðgarnir láta Haga kaupa auglýsingar hjá Fréttablaðinu til að fríblaðsútgáfan gangi upp.

Þetta er sami leikur og feðgarnir léku þegar þeir keyptu undir fölsku nafni Fréttablaðið árið 2002. Þá var Baugur almenningshlutafélag sem þeir feðgar stýrðu. Auglýsingafé frá Baugi stóð undir útbreiðslu Fréttablaðsins.

Arion banki lætur sér vel líka að vera hafður af fífli og er með tvær stórar auglýsingar í Fréttablaðinu í dag.

 


Óvitarnir Steingrímur J. og Jóhanna

Það er af óvitaskap sem Jóhanna og Steingrímur J. hafa talað máli Breta og Hollendinga gagnvart Íslendingum. Skötuhjúin eru heimarík en lyppast niður utan túnfótar en hvorug verseruð í alþjóðastjórnmálum. Frammistaða Ólafs Ragnars erlendis sýnir að þar fer stjórnmálamaður sem kann sitt fag.

Til að við fáum nýjan Icesave-samning þurfa þau Jóhanna Steingrímur J. að segja af sér. Óvitaskapur er engin afsökun.


mbl.is „Það er verið að kúga okkur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 30. janúar 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband