Stjórnarandstaðan óttast völdin

Stjórnarandstaðan í heilbrigðu ástandi á að vera kokhraust og þenja sig því meira sem stjórnin stendur hallari fæti. Ástandið er því miður ekki eðlilegt. Stjórnarandstaðan er enn í búsáhaldarbyltingarsjokki og þorir varla að anda á Jóhönnustjórnina af ótta við að hún falli.

Stjórnarandstaða sem fælist ábyrgð á landsstjórninni ætti vitanlega að fá sér annað að gera en vera í pólitík.

Þjóðin mun taka af skarið og fella Icesave 2. Þar með er ríkisstjórninni ekki sætt. Stjórnarandstaðan hlýtur að slökkva á gemsunum sínum af ótta við að fá hringingu frá Ólafi Ragnari.


mbl.is Eðlilegt að undirbúa viðræður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samkeppniseftirlit er ofan á brauð

Alla útrásina var Samkeppniseftirlitið í felum líkt og Fjármálaeftirlitið og fleiri aðilar í stjórnsýslunni. Samkeppniseftirlitið var svo meðvirkt auðræðinu að rassvasafyrirtæki Finns Ingólfssonar á sviði bifreiðaskoðunar ætlaði að sameinast hinu fyrirtækinu í bransanum og yrði þá aðeins eitt fyrirtæki í landinu sem veitti skylduskoðun á ökutæki.

Gaurarnir sem  véluðu um gerðu ráð fyrir samþykki Samkeppniseftirlitsins vegna þess að rökin fyrir henni voru þau að nýtt einokunarfyrirtæki ætlaði í útrás. Næst mesta dellan sem komst áleiðis og sýndi hvaða álit auðmenn höfðu á Samkeppniseftirlitinu var þegar Björgólfur eldri og Jón Ásgeir Baugsstjóri ætluðu að sameina Morgunblaðið og Fréttablaðið/Stöð 2.

Af frétt Eyjunnar að dæma er Samkeppniseftirlitið að vakna úr dái og rétt að óska stofnuninni til hamingju með það.


Bloggfærslur 22. janúar 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband