Vinstri grænir að ná vopnum sínum?

Drög að ályktunum flokksráðsfundar Vinstri grænna kveða á um að Ísland dragi tilbaka umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Eftir hálfs árs setu í ríkisstjórn með Samfylkingunni rennur upp fyrir æ fleiri flokksmönnum Vg að fórnin sem var færð 16. júlí er ekki hægt að réttlæta.

Vg eiga sóknarfæri á vinstri kanti stjórnmálanna. Skoðanakannanir sýna að flokkurinn heldur sína og vel það á meðan fylgi við Samfylkinguna dalar.

Eftirhrunssamfélagið biður um orðheldni. Ef flokksráðið samþykkir ályktun um að draga umsóknina tilbaka er boðið upp á sátt við þá fjölmörgu kjósendur sem kusu Vg gagngert vegna andstöðu við inngöngu í ESB.

Fréttastofan ESB-RÚV sá ástæðu til að taka fram þegar fréttin var sögð að í stjórnarsáttmála Vg og Samfylkingar segir að sótt skuli um aðild að ESB. Fréttastofan hafði ekki fyrir því segja að hvergi í sáttmálanum er tekið fram að ekki megi draga umsóknina tilbaka.


Samráð um svik, eða þjóðarsátt?

Stjórnarandstaðan ætti að fara varlega í samskiptum við ríkisstjórn Jóhönnu sem var mynduð um svik við kjósendur Vinstri grænna og Icesave-málarekstur sem gengur í berhögg við þjóðarhagsmuni.

Prófsteinn á það hvort ríkisstjórnin ætli að sjá að sér og leita sátta í þjóðfélaginu er hvort ESB-umsóknin verði dregin tilbaka.

Hlaupi stjórnarandstaðan undir Icesavebagga stjórnarinnar án sýnilegra sinnaskipta ráðherra eru framsóknarmenn og sjálfstæðismenn að láta nota sig.

Ef ríkisstjórnin er farin að átta sig á að þjösnaskapur á þingi og yfirgangur í samskiptum sé ekki rétt aðferðafræði í eftirhrunsþjóðfélaginu ber að þakka fyrir. Yfirbótin verður að koma fram í verkum stjórnarinnar.


mbl.is Þverpólitísk nefnd um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sundurlyndisstefna Samfylkingar veit ekki á sátt

Samfylkingin er aðalhöfundur að sundurlyndi íslenskra stjórnmála seinni ára. Samfylkingin gaf ósvífnasta meiði útrásarinnar, Baugsveldinu, trúverðugleika og var málssvari Baugs í opinberum sakamálum. Samfylkingin ber höfuðábyrgð á eineltisvæðingu í stjórnmálum þar sem fæð flokksins á Davíð Oddssyni teygði sig lengra en hófi gegndi.

Sundurlyndisstefna Samfylkingarinnar náði hámarki í vor þegar flokkurinn með frekju og yfirgangi þvingaði samstarfsflokkinn, Vinstri græna, til að samþykkja aðildarumsókn að Evrópusambandinu.

Samfylkingin fékk innan við 30 prósent atkvæða í síðustu kosningum og er eini flokkurinn sem vill fyrirvaralausa inngöngu í Evrópusambandið. Það er ótækt að Samfylkingin leggi línurnar í jafn veigamiklu máli.

Eitrið í Icesave-málinu stafar ekki síst af þingsályktuninni frá 16. júlí þegar þingmenn Vinstri grænna voru með ofbeldi þvingaðir til að ganga á bak orða sinna gagnvart kjósendum sínum og samþykkja aðildarumsókn til ESB.

Samfylkingin þarf að sýna sáttarhug sinn með því að samþykkja að aðildarumsóknin til Brussel verði dregin tilbaka.


mbl.is Jóhanna: Skynsamlegra að leysa án þjóðaratkvæðagreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. janúar 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband