Ríkisstjórnin tekur þjóðina í gíslingu

Jóhönnustjórnin er í herkví, ekki þjóðin eins og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra vildi vera láta í Sjónvarpinu í kvöld.  Þjóðin hafnar eindregið og afdráttarlaust niðurlægjandi samningum sem ríkisstjórnin gerði við Breta og Hollendinga um uppgjör á Icesave samningum. 

Ríkisstjórnin ætlar sér að halda þjóðinni í gíslingu á meðan hún bíður eftir kraftaverki. Bretar og Hollendingar hafa enga ástæðu til að setjast að samningaborði við ríkisstjórn Jóhönnu. Samningurinn frá í sumar var gerður við núverandi stjórn og hún hefur margklúðrað málinu.

Til að minnsta von sé til að Bretar og Hollendingar semji upp á nýtt þarf ríkisstjórnin að víkja.


Sáttatilboð frá ríkisstjórn skapar sóknarfæri

Ríkisstjórnin er á öndverðum meiði við þjóðina í Icesave-málinu og stendur ráðþrota. Forsetaneitun Ólafs Ragnars breytti í einni hendingu pólitískri stöðu hér á landi. Í stjórnmálum er pattstaða þar sem spjótin standa á ríkisstjórninni. Bakland stjórnarinnar í Samtökum iðnaðarins og verkalýðshreyfingunni er að bresta.

Við þessar aðstæður er hægt að sitja með hendur í skauti og láta veröldina hrynja ofan á sig. Það er líka hægt að meta aðstæður upp á nýtt og spyrja sig hvernig má reyna að snúa taflinu sér í vil. Til þess þarf pólitíska aðgerð sem er djörf og sýnir breyttan skilning á stöðu mála.

Hörmungarganga ríkisstjórnarinnar hófst 16. júlí í sumar þegar umsókn um aðild Íslands að Evrópusambandinu var nauðgað í gegnum alþingi. Icesave er pólitískt og efnahagslegt gjald sem þarf að greiða fyrir inngöngu sem aðeins Samfylkingin hafði á stefnuskrá sinni í kosningunum í vor.

Ríkisstjórnin getur rétt þjóðinni sáttarhönd með því að draga tilbaka umsóknina um aðild að Evrópusambandinu. Með slíkri fórn segði ríkisstjórnin við almenning að forgangsmál væri velferð þjóðarinnar og sértrúarmálefni yrði að leggja á hilluna. Jafnframt væru vopn slegin úr höndum Breta og Hollendinga sem telja sig hafa tak á okkur vegna umsóknarinnar.

Ríkisstjórnin gæti fengið almenning i lið með sér ef hún er tilbúin að hefja sig yfir flokkshagsmuni Samfylkingarinnar.


Bloggfærslur 12. janúar 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband