Klíkur, lýðræði og sjálfstortíming

Útrásarauðmenn stunduðu viðskiptalega blóðskömm með því að lána hverjir öðrum í gegnum bankana sem þeir stjórnuðu. Viðskiptahættir af þessum toga grafa auðveldlega um sig í litlum samfélögum. Virkt lýðræði og fjölræði með eðlilegri valddreifingu hamlar gegn mafískri klíkumyndun sem leiddi til hrunsins.

Við sem þjóð getum breytt því hvernig málum er skipað og byggt upp heilbrigðari samfélag en það sem leyfði viðskiptalegu blóðskömmina.

Þeir til sem halda að með því að ganga í Evrópusambandið munum við varpa af okkur oki innlenda klíkuvaldsins. Svo er aldeilis ekki. Við myndum flytja fullveldi okkar til Brussel og fá yfir okkur nýjar klíkur með tvöfalda heimilisfestu í Belgíu og Íslandi. Ef við ætlum að breyta því hvernig málum er skipað á Íslandi verðum við að tala við eina evrópsk-íslenska klíku sem verða fimm þingmenn Íslands á Evrópuþinginu - af 765. Klíkan sú verður með staðlað svar: Við skulum sjá hvað við getum gert, en málin eru ekki í okkar höndum.

Á Íslandi höfum við fullveðja lýðræðissamfélag. Ef við göngum í Evrópusambandið er það tapað.


mbl.is Kunningjasamfélagið Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaupþing og forysta Sjálfstæðisflokksins

Formaður Sjálfstæðisflokksins gekk fyrir björg í morgun í blaðaviðtali þar sem hann harmaði að upplýsingar úr lánabók Kaupþings bærust til almennings. Kaupþing er sérstakt áhugamál forystu Sjálfstæðisflokksins, varaformanninum fannst sniðugt að kaupa fyrir 900 milljónir króna í bankanum útá kúlulán sem ekki stendur til að gjaldfella.

Með viðhlæjendur eins og Illuga Gunnars úr Glitnissjóð 9 og Guðlaug Þór kenndan við REI er kannski ekki von að Bjarni formaður hafi kveikt á fattaranum þegar kemur að almennum viðhorfum í þjóðfélaginu til útrásarbankanna. Til að kóróna dómgreindarhrunið er fjölskyldufyrirtæki formanns Sjálfstæðisflokksins í téðri lánabók Kaupþings.

Eftir kosningaósigur í vor flutti formaðurinn snotra ræðu um að hann ætlaði að breyta Sjálfstæðisflokknum þannig að almenningur kysi hann á ný. Það var og.

 


Bankamafían fyrir breska dómstóla

Frétt Telegraph um lögreglurannsókn í Bretlandi á málefnum íslensku bankanna er líkleg til að hreyfa við málum hér heima. Menn verða ekki dæmdir fyrir sama glæpinn tvisvar þannig að spurning gæti orðið hvort rétta ætti yfir útrásarauðmönnum hér heima eða ytra. Bretar búa að meiri reynslu í glæpamálum af þessu tagi og einboðið að íslenskir saksóknarar ættu að leggja fram um að aðstoða breska starfsbræður sína.

Litla-Hraun er líka alltof góður staður fyrir útrásargemsana.

Hér er frétt Telegraph.


Bloggfærslur 5. ágúst 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband