Laugardagur, 29. ágúst 2009
Daufur formaður í dauðvona flokki
Sjálfstæðisflokkurinn tærist upp ef hann tekur sér ekki taki og gerir tvennt. Í fyrsta lagi þarf flokkurinn að horfast í augu við nýliðna fortíð sína, sem lagði pólitískan og hugmyndafræðilegan grunn að útrásarhruninu. Í öðru lagi verða þeir trúnaðarmenn flokksins að víkja sem eru upp fyrir haus í útrásaróþverra.
Ræða formanns Sjálfstæðisflokksins í dag var daufleg í meira lagi. Sjálfstæðisflokkurinn tapaði Icesave-umræðunni þegar hann gekkst inn á fyrirvaraleið ríkisstjórnarinnar. Þetta er sama fjögurra-fóta-pólitíkin og fráfarandi formaður, Geir H. Haarde, rak gagnvart Samfylkingunni með fyrirsjáanlegum árangri.
Í stærsta máli lýðveldisins, afstöðunni til Evrópusambandsaðildar, er Bjarni formaður enn með svöðusár sem hann veitti sjálfum sér í félagi með Illuga Gunnarssyni þegar hann opnaði á aðildarumsókn í vanhugsaðri blaðagrein. Sjálfstæðisflokkurinn í núverandi mynd er ónýtt verkfæri fyrir fullveldisbaráttu þjóðarinnar.
Getuleysi, viljaleysi og uppgjafarhugsun er skrifuð skýrum stöfum þvert á enni móðurflokks íslenskra stjórnmála.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 29. ágúst 2009
Forseti í þágu þjóðar - eða bara auðmanna
Icesave-frumvarp ríkisstjórnarinnar hefur staðfest gjá á milli þings og þjóðar. Þjóðin vill ekki samþykkja ábyrgð á skuldum óreiðumanna í útlöndum. Fordæmi er fyrir synjun forseta á lagafrumvarpi. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, synjaði staðfestingu fjölmiðlafrumvarpsins fyrir fimm árum og gerði það í þágu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar útrásarauðmanns.
Forsetinn fær tækifæri næstu daga til að sýna fram á að hann standi undir nafni sem þjóðhöfðingi íslensku þjóðarinnar. Staðfesti forsetinn frumvarpið um ríkisábyrgð á Icesave yrði það um leið yfirlýsing um að auðmenn eigi einir hollustu Ólafs Ragnars Grímssonar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 29. ágúst 2009
Hreiðar Már og tiltrúin
Forsíðufrétt Fréttablaðsins í dag er hagfræðiboðskapur Hreiðars Más Sigurðssonar fráfarandi forstjóra Kaupþings. Hann segir Seðlabankann verða að lækka vexti. Rökin verðskulda beina tilvitnun.
,,Þetta snýst allt um tiltrú, og hún er ekki fyrir hendi."
Þegar Hreiðar Már talar um tiltrú er það álíka trúverðugt og boðskapur um miskunnsemi frá dæmdum fjöldamorðingja. Hreiðar Már ásamt útrásarauðmönnum traðkaði traust á íslensku efnahagslífi niður í svaðið. Tiltrú í munni Hreiðars Más er faðirvorið í kjafti andskotans.
Við fáum tiltrú umheimsins þegar við sýnum í verki að Hreiðar Már, Lýður Guðmundsson, Jón Ásgeir Jóhannesson og öll hin útrásarviðrinin fái ekki hljómgrunn í samfélaginu. Ísland þarf að þvo hendur sínar af óþverranum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)