Sigmundur Ernir á Alþingi

Myndbrot af frammistöðu þingmanns Samfylkingarinnar og fyrrum fréttamanns, Sigmundar Ernis Rúnarssonar, liggur á YouTube. Heiti myndskeiðsins er Fjör á Ölþingi og er dagsett 20. ágúst. Viðkomandi þingmaður þarf að útskýra hvort vinnuálagið á Alþingi sé slíkt að menn á besta aldri kikni undan. Þingmaðurinn ætti sennilega að biðjast undan kvöldfundum því hann kemur ekki alltof vel fyrir þegar degi tekur að halla.

Er Kaupþing banki almennings eða auðmanna?

Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri Kaupþings gældi við að fella niður skuldir Björgólfsfeðga en var snarlega gerður afturreka. Af frétt Morgunblaðsins að dæma ætlar Kaupþing að leggja sig í líma við að varðaveita tangarhald Jóns Ásgeirs Jóhannessonar á afgangi Baugsveldisins, á meðan almenningi er gert að borga gjaldþrot móðurfélagsins.

Kaupþing virðist ætla að þjónusta auðmenn á líkan hátt og bankinn gerði fyrir hrun. Í skjóli bankaleyndar fá auðmenn aðstoð við að halda illa fengnum hlut en skuldirnar færðar yfir á almenning.

Endurreisn bankakerfisins getur ekki orðið á þessari forsendu. Kaupþing og aðrir ríkisbankar verða að gjöra svo vel að útskýra á hvaða forsendum þeir ætla að reka starfsemi sína.


mbl.is Hagar í gjörgæslu Kaupþings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 22. ágúst 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband