Klækjastjórnmál eru léleg útflutningsvara

Fyrirvaraleiðin á ónýtum Icesave-samningi er til að framlengja líf ríkisstjórnarinnar sem yrði að segja af sér ef Alþingi hafnaði frumvarpinu í beinni atkvæðagreiðslu. Klækjastjórnmál síðustu ára verða til í andrúmslofti útrásar sem, eins og óðum er að birtast alþjóð, gekk út á blekkingar og bókhaldsbrellur. Annar stjórnarflokkanna, Samfylkingin, gerði klækjastjórnmál að sérgrein, samanber kosningabaráttuna í vor.

Þjóðinni er enginn greiði gerður með því að framlengja háttsemi í stjórnmálum sem varð okkur dýrkeypt í viðskiptum. Stjórnmálamenn eiga að temja sér ný vinnubrögð. Ágæt byrjun er að segja hlutina eins og þeir eru: Icesave-samningurinn er ónýtur, við verðum að gera nýjan samning.


mbl.is Stórskaðar hagsmuni Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hæfileikar sem æskilegt er að flýi land

Fífldjörf áhættusækni, bókhaldsbrellukunnátta, viðskiptasiðleysi og taumlaus græðgi eru meðal þeirra hæfileika sem gjarnan mættu verða landflótta. Þegar einstaklingar með þessa eiginleika fara úr landi er það landhreinsun.

Þeir sem leita fyrir sér í útlöndum þessi misserin eru þó flestir venjulegir Íslendingar sem hafa orðið fyrir barðinu á fjárglæfrum útrásarinnar. Ef eitthvað er að marka fyrri reynslu mun þorri landsmanna skila sér heim fyrr heldur en seinna.

Og líklega sitjum við uppi með þá sem helst ættu að fara.


mbl.is Óttast íslenskan spekileka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland sendir röng skilaboð

Mistökin sem verið er að gera með því að lappa upp á ónýtan Icesave-samning eru óðum að koma í ljós. Ísland er talið ætla að koma sér undan að greiða ríkisskuldir sem er alls ekki til að dreifa. Deilan snýst um að hvernig eigi að mæta gjaldþroti einkabanka og hvar ábyrgðin á regluverki ESB liggur.

Ríkisstjórnin ber ábyrgð á ónýtum samningi og ætti að segja af sér þegar Alþingi hafnar samningnum. Sjálfstæðisflokkurinn lét ríkisstjórnina plata sig inn á fyrirvaraumræðuna til að dreifa ábyrgðinni á klúðri sem liggur alfarið og eingöngu hjá stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.

Með því að prjóna fyrirvara við samninginn er fallist á þau meginsjónarmið að Ísland beri ábyrgð á gölluðu regluverki ESB. Það fær ekki staðist.

Handvömm ríkisstjórnarinnar og hræðsluáróður um að himinn og jörð farist ef ekki verður gengið að kröfum Breta og Hollendinga má ekki verða til að Ísland gefi frá sér réttmætar varnir í deilunni um Icesave-reikningana.

Framsóknarflokkurinn hefur staðið vaktina og tími kominn til að Sjálfstæðisflokkurinn hysji upp um sig brækurnar. Liðið í forystu Sjálfstæðisflokksins er kannski ekki tilbúið í slaginn og verður því að skipta út veikustu hlekkjunum.


mbl.is Fleiri fari að dæmi Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. ágúst 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband