Laugardagur, 25. júlí 2009
Nýlenduyfirvald í boði Vg
Landsherra Íslands Rozwadowski er hér í boði fjármálaráðherra og formanns Vg, Steingríms J. Sigfússonar. Félagarnir dunda sér við að knésetja Ísland, fyrst með því að dengja yfir okkur Icesave-samningnum og í framhaldi nauðga okkur inn í Evrópusambandið.
Atli, Ási, Guðfríður Lilja ættu að kveðja þingflokk Vg og stofna nýjan flokk, sem eins og Atli segir réttilega, ætti að fylkja liði í fullveldis- og sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar.
Vinstri grænir eru álíka ónýtur flokkur og Sjálfstæðisflokkurinn væri ef hann tæki upp marxíska stefnuskrá og ríkisvæddi Íslands til andskotans.
![]() |
Vill að AGS leggi spilin á borðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 25. júlí 2009
Kaup kaups við Nato og ESB
Í staðinn fyrir hagfelldan fiskveiðisamning veitir Ísland Evrópusambandinu atbeina í fyrirsjáanlegum stórveldaslag Bandaríkjanna, Rússa og Evrópusambandsins um auðlindir á norðurslóðum. Efnislega á þessa leið mæltist Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra í Stokkhólmi þegar Ísland í annað sinn á nokkrum dögum lagði umsókn um aðild að Evrópusambandinu fyrir Svía sem veita ráðherraráði ESB formennsku þetta hálfárið.
Íslensk stjórnvöld hafa áður stundað sambærileg viðskipti. Landið var á dögum kalda stríðsins selt sem ósökkvandi flugmóðurskip á miðju Atlantshafi. Pólitískir umskiptingar eins og Össur, Jón Baldvin Hannibalsson, Jónas Haralz, Jón Magnússon, Benedikt Jóhannesson eru hrifnir af viðskiptum af þessu tagi því þau ríma við sölumennskueðli þeirra sjálfra.
Sannfæringastjórnmálamenn, einstaklingar með siðferðislega kjölfestu, eins og Bjarni Benediktsson og Eysteinn Jónsson tóku þátt í utanríkisviðskiptum þar sem land var selt undir útlenda aðstöðu af tveim ástæðum. Í fyrsta lagi vegna þess að meðfram viðskiptunum var hugsjónapólitík þar sem tókust á ólíkar hugmyndir um þjóðskipulag, sósíalískt/kommúnískt annars vegar og hins vegar markaðsbúskapur. Í öðru lagi vegna þess að aðstæður leyfðu ekki annað. Ísland var hernumið í upphafi seinni heimsstyrjaldar og út frá þeirri stöðu þurfti að vinna.
Okkur tókst sem þjóð að vinna þokkalega úr álitamálum sem þurftu úrlausn um miðbik síðustu aldar. Stofnun lýðveldis, hersetusamningur við Bandaríkin, stofnaðild að Nato og útfærsla landhelginnar voru utanríkispólitískir þættir sem fengu farsæla niðurstöðu, þótt skoðanir hafi verið skiptar.
Engin leið er að fyrirliggjandi hugmyndir um kaup kaups við Brussel fái farsæla niðurstöðu. Engin hugsjónapólitík er aflvaki, við opnum landhelgina útlendingum og fáum lítið sem ekkert í staðinn.
Aðeins ein ástæða er fyrir því að utanríkisráðherra Íslands er yfir höfuð að reyna að ná samningum. Vegna hrunsins bilaði dómgreind þjóðarinnar og hún kaus yfir sig grilluflokk Íslands, Samfylkinguna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 25. júlí 2009
Umsóknin framlengir hrunið
Umsóknin um aðild Íslands að Evrópusambandinu gerir uppgjörið við hrunið lengra og erfiðara. Án umsóknarinnar hefði umræðan beinst að orsökum hrunsins, ábyrgðaraðilum og hvernig taka ætti á eftirmálum hrunsins. Þegar umsókninni er hent inn í umræðuna með þeim hætti sem raun er á verða til átakalínur sem ganga þvert á fyrri vígstöðu, andstæðingar verða vopnabræður.
Sjálfstæðisflokkurinn, til dæmis, mun að öllum líkindum ná fyrr vopnum sínum með því að verða oddviti andstöðunnar gegn umsókninni. Pólitísk staða Vinstri grænna, sem var flokkur hreinna handa fyrir svikin, er tæp svo ekki sé meira sagt.
Útrásarliðið og fylgifé þeirra er meira og minna umsóknarsinnað. Vígstaðan sem blasir við er að Baugsfylkingin verður fimmta herdeildin í íslensku samfélagi.
Við andstæðingar umsóknar megum vera fjandi slappir að tapa þessum slag. Hreint helvíti slappir.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)