Mánudagur, 20. júlí 2009
Útlent eignarhald á bönkum en íslensk stjórn
Erlendir lánadrottnar munu eignast tvo af þremur íslensku ríkisbönkunum en bankastjórnir þeirra verða áfram skipaðar fulltrúum ríkisvaldsins, segir í frétt Telegraph af bankaútspili ríkisstjórnarinnar. Orðrétt segir í fréttinni
Government representatives will remain on the boards on the banks, which Iceland plans float at some stage.
Erlent eignarhald á íslenskum bönkum hefur verið kynnt þannig að það mátti skilja að nýir eignaraðilar myndu stýra bönkunum. Af frétt Telegraph að dæma munu fulltrúar ríkisvaldsins áfram skipa bankastjórnirnar og íslenskt fjármálalíf fara á mis við leiðsögn sem betur hefði komið fyrir áratug eða svo - áður en útrásin hófst.
Hér er frétt Telegraph.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 20. júlí 2009
Umsóknin verður afturkölluð
Umsóknin um aðild Íslands að Evrópusambandinu verður afturkölluð. Þingsályktunin sem leyfði ríkisstjórninni að sækja um aðild byggir sannanlega á fölskum meirihluta, þar sem þingmenn Vg sögðust andvígir aðild Íslands að Sambandinu þótt þeir samþykktu ályktunina. Fyrir liggur að meirihluti þjóðarinnar er andvígur inngöngu, samkvæmt skoðanakönnunum.
Rétt eins og það var einfalt mál að senda inn umsókn er sáraeinfalt að afturkalla hana.
Mánudagur, 20. júlí 2009
Fellur enn ein röksemd fyrir Icesave-samningi
![]() |
Óvissu um bankana eytt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 20. júlí 2009
Evran bjargar ekki Írum
Írar búa við 12 prósent atvinnuleysi, ríkisfjárhag í molum, stórskerta velferðaþjónustu, lokanir skóla og svarta framtíðarsýn. Engu að síður eru Írar í Evrópusambandinu og hafa evru. Samkvæmt nýrri greiningu Economist verður efnahagur Íra í kreppuástandi um fyrirsjáanlega framtíð.
Blekkingar ESB-fjölmiðla á Íslandi um að evran hafði bjargað okkur frá hruni, aðild að Evrópusambandinu auðveldað okkur lántökur og fleira í þeim dúr eru hannaðar til að telja almenningi trú um að ef aðeins við værum inni hjá Brusselvaldinu drypi hér smjör af hverju strái.
ESB-miðlarnir á Íslandi reyna að bregða á loft falsmynd með því að skauta létt framhjá kreppunni í Evrópusambandslöndunum.
![]() |
Fjárfestar vissu að Seðlabankinn kæmi ekki til bjargar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)