Þriðjudagur, 9. júní 2009
Sviplausir samfylkingarsauðir
Blóðið rennur í þingmönnum Vinstri grænna og þeir láta vita þegar þeim er misboðið. Þingmenn Samfylkingarinnar eru aftur á móti sviplaus sauðahjörð. Geðleysi þingmanna Samfylkingar rímar við að þeir hafa ekkert til málanna að leggja. Samfylkingin hefur það eitt á stefnuskrá sinni að láta Evrópusambandið sjá um málin stór og smá.
![]() |
Valtur meirihluti í Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þriðjudagur, 9. júní 2009
Moggarjúpa á ESB-staur
Fréttin gæti verið skrifuð á flokkskontór Samfylkingarinnar þar sem löngum er barið í ESB-brestina og inngöngukostir fegraðir. Auðvelt er að setja sér fyrir sjónir minnisskilti á ritstjórn Morgunblaðsins: Þegar við skrifum um Evrópusambandið setjum við dómgreindina ofan í skúffu.
![]() |
Aðild Íslands sett í forgang |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)