Þriðjudagur, 16. júní 2009
Gunnar I. fórnarlamb, já er það ekki?
Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri í Kópavogi opnaði bæjarsjóð fyrir dóttur sína sem skrifaði reikninga fyrir verk sem sum voru varla unnin og ofurreikninga fyrir önnur störf. Núna virðist hann þurfa að víkja sem bæjarstjóri og stillir sjálfum sér upp sem fórnarlambi vinstrimanna og fjölmiðla.
Gunnar er álíka fórnarlamb og þjófur sem staðinn er að verki og er kallaður lögbrjótur.
![]() |
Framkvæmdaglaður bæjarstjóri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 16. júní 2009
Villi og orðræða atvinnulífsins
Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að ekki megi skattleggja fyrirtækin þannig að atvinnulífið ,,falli niður." Atvinnulíf óvart getur ekki fallið niður í neinni eiginlegri merkingu orðanna að falla niður. Tungubrjótur framkvæmdastjórans kemur sennilega til af því að honum er orðs vant. Fyrirtækin töpuðu frjálshyggjuorðræðunni sinni í hruninu. Þið munið stefið um lægri skatta, meiri gróða - og allir djollí.
Núna verðum við sem sagt að passa að atvinnulífið falli ekki niður. Góður brandari, Villi.
![]() |
Það verður að passa upp á skattstofnana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)