Elítan lýgur sannfærandi

Fjölmiðlar keppast við að selja okkur þá hugmynd að aðildarviðræður við Evrópusambandið séu sérstakt markmið. Skoðanakannanir eru keyptar til að staðfesta að þjóðin vilji í aðildarviðræður og Evrópusinnar eins og Egill Helgason hrópa húrra fyrir því.

Menn þurfa að ljúga fyrst að sjálfum sér til að geta logið sannfærandi að öðrum. Aðildarviðræður geta aldrei verið sérstakt markmið. Innganga í Evrópusambandið er aftur á móti markmið sumra. Ástæðan fyrir því að aðildarsinnar gera jafn mikið úr viðræðum og raun ber vitni er að tilgangurinn helgar meðalið; fyrst er að fá viðræður og fá svo samning sem á selja þjóðinni sem óhjákvæmilega niðurstöðu úr viðræðum.

Þetta er sama þroskaferli og í spillingu. Spilling byrjar er menn sjá í gegnum fingur sér þegar farið er á svig við viðurkennd gildi og síðan eru reglurnar beygðar og þar á eftir brotnar.

Skoðanakannanir sýna trekk í trekk að þjóðin er andvíg inngöngu í Evrópusambandið. Reynsla annarra þjóða er að til að þjóðir gefi eftir fullveldi til Brussel þurfi stór meirihluti að vera fyrir valdaframsali þegar umræðan hefst. Við erum enn að ræða hvort við ætlum í viðræður.

Elítan hefur hins vegar engar áhyggjur af því þótt hún á endanum verði afhjúpuð sem ómerkilegir loddarar. Elítan er þrátt fyrir allt að stórum hluta þjálfuð í blaðamannaakademíu Baugs og þykist vita að hún situr hvernig sem allt veltur.

Þingmenn, á hinn bóginn, sem eiga á næstu vikum að taka afstöðu til þess hvort farið verði í aðildarviðræður munu ekki sitja áfram þegar þjóðarviljinn nær fram að ganga. 

 


mbl.is 61,2% vilja aðildarviðræður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Chelsea er ESB

Barcelona tók Chelsea og sýndi og sannaði að léttleikandi snilli og þrautseigja geta farið saman. Chelsea er eins og Evrópusambandið; þunglamalegt, vanstillt og blátt.

Evran kyrkir Íra

Leið Íra úr kreppunni er að láta evruna lönd og leið og taka upp eigin gjaldmiðil. Að öðrum kosti stefnir Írlandi í langt samdráttarskeið með atvinnuleysi og fallandi þjóðartekjum. Þetta segir David McWilliams dálkahöfundurIrish Independent.

Sveigjanleiki sem fæst með eigin mynt er gulls ígildi þegar kreppir að. Stór fjölþjóðamynt er smáþjóð aftur þungur baggi að bera vegna þess að skráning myntarinnar tekur ekki mið af hagsmunum smáþjóðarinnar.

Írar myndu flestir vilja vera í sporum Íslendinga, með eigin mynt og utan Evrópusambandsins.


Bloggfærslur 6. maí 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband