Mánudagur, 4. maí 2009
Réttlætið er hart, spillingin mjúk
Spillingin er í mörgum útgáfum. Á liðnum vikum og mánuðum sást til stjórnmálamanna þiggja styrki sem þeir hefðu betur látið ósnerta, auðmenn ljúga um stöðu fyrirtækja sinna og bankamenn umgangast bókhald eins og eiturlyfjasali arð sinn.
Sumir þeirra sem sitja eftir með sárt ennið vegna þess að þeir vildu mola af auðsældinni og skuldsettu sig um of eiga þau ráð handa stjórnvöldum að framlengja spillinguna. Framlengingin felst í því að gefa upp skuldir með af-því-bara rökum. Einn stjórnmálaflokkur, Framsóknarflokkurinn, er til í að ábyrgjast framlenginguna en það er einmitt sami flokkurinn sem annars vegar ruddi brautina fyrir 100 prósent húsnæðislánum og hins vegar bauð gamla spillingaraðlinum úr SÍS að gæða sér á opinberum eigum.
Veisluborð auðs og fávisku, sem þjóðin hefur setið að í tæpan áratug, er autt. Tímabært er að fólk átti sig á því að framlenging vitleysunnar er glapræði.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 4. maí 2009
Að borga lán eða ekki
Kastljósumræða kvöldsins var um það hvort ætti að borga lán eða ekki. Sniðugt hugtak var kynnt til sögunnar, fjárhagsleg borgarastyrjöld, sem var hótað ef stjórnvöld leystu ekki skuldara undan byrðum sínum. Ef efnt yrði til fjárhagslegrar borgarastyrjaldar og skuldarar ynnu yrði óðara siðferðileg borgarastyrjöld þar sem þeir skilvísu vildu líka fá sitt.
Hvaða réttlæti er í því að skuldarar fái peninga á silfurfati á meðan skilvísir fá ekkert?
Hvar á vegferðinni gleymdust þessi einföldu skilaboð sem jafnt þeir fávísu sem upplýstu ættu að hafa yfir bæði kvölds og morgna: Ef ég borga ekki skuldir mínar er ég gjaldþrota...
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mánudagur, 4. maí 2009
Endurreisn eða innanlandsófriður
Ný ríkisstjórn getur ekki endurreist efnahagslífið ef hún ætlar að sækja um inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Þróttur ríkisstjórnarinnar færi í það að útskýra hvernig hún ætlaði að bjarga landinu með því að farga fullveldinu. Það er harla langsótt að einstaklingar með tiltölulega heilbrigða dómgreind, Steingrímur J. Sigfússon, Katrín Jakobsdóttir, Ögmundur Jónasson og Atli Gíslason ætli sér í slíka vegferð.
Það virðist þó alltaf til fólk sem lítur á stjórnmál sem verslunarvöru. Árni Finnsson skrifar í Smuguna að Vinstri grænir eigi mótleik og geti sótt fram í umhverfismálum ef flokkurinn fórnar fullveldinu. Minnir svolítið á mann sem selur sjálfan sig í þrældóm en telur sig eiga mótleik í því að betla.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 4. maí 2009
Yfirboð koma stjórnmálaflokkum í koll
Í kosningabaráttunni yfirbauð Samfylkingin. Hvorki var pólitísk innstæða né atkvæðafylgi fyrir Evrópuhraðleið Samfylkingarinnar. Strax eftir kosningar gat Samfylkingin heiðarlega lagt niður laupana og kannast við erindisleysu sína. En völdin heilla stjórnmálamenn meira en annað og því var sest niður með Vinstri grænum að setja saman ríkisstjórn, þrátt fyrir að himinn og haf bæri á milli.
Þjóðin virðist til í vinstri stjórn og hefur þolinmæði enn um sinn. Samfylkingunni til hróss verður að segja að í megindráttum hafa liðþjálfar Jóhönnu haldið sig á mottunni og leyft flokksmóðurinni að túlka afstöðu flokksins. Á meðan Samfylkingin sýnist ein heild eru líkur á að flokkskokið sé nógu vítt til að gleypa innistæðulausu yfirboðin úr kosningabaráttunni.
Kannski er ekki öll nótt úti fyrir vinstristjórn.
![]() |
„Viljum hafa fast land undir fótum“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)