Föstudagur, 22. maí 2009
Bretar vilja tilbaka tapað fullveldi
Ný skoðanakönnun segir meirihluta Breta vilja fá tilbaka völd sem framseld hafa verið til Evrópusambandsins. Meirihluti Breta er andsnúinn samþykkt Lissabon-sáttmálans. Þá er afgerandi meirihluti fylgjandi því að bresk stjórnvöld neiti að innleiða reglur ESB sem eru í andstöðu við breska hagsmuni. Um 75 prósent þjóðarinnar vill að Lissabon-sáttmálinn verði borinn undir þjóðaratkvæði.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)