Fimmtudagur, 14. maí 2009
Ekkert samráð við þjóðina
Samráð við þjóðina skortir í þingsályktun sem Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra ætlar að leggja fyrir alþingi. Þjóðin fær ekki að segja álit sitt á fyrirætlun Samfylkingar að flytja forræði okkar mála til Brussel. Þjóðaratkvæði um það hvort sækja skuli um inngöngu í Evrópusambandið er forsenda fyrir því að ríkisstjórnin hafi umboð almennings til að ræða við útlendinga um víðtækt framsal valdheimilda.
Það er fáheyrt að með þingsályktunartillögu er felur í sér framsal á fullveldi í jafn ríkum mæli og fyrirséð er að ekki skuli lögð fram ítarleg greining á stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna og rökstuðningur hvers vegna stefnt sé að róttækri breytingu þar á.
Flaustursleg vinnubrögð ríkisstjórnarinnar gefa til kynna að þingsályktunin sé sett fram til að þyrla upp moldviðri á alþingi svo að nærtækari málefni, svo sem skuldastaða þjóðarbúsins og væntanlegur niðurskurður ríkisútgjalda fái ekki athygli og umræðu sem skyldi.
Það veit ekki á gott þegar ný ríkisstjórn gerir sig seka um klækjastjórnmál af verstu sort á fyrstu starfsdögum sínum.
![]() |
Rökstuðninginn skortir ekki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 14. maí 2009
Össur vill opið umboð án skilyrða
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra skrifar þingsályktunartillögu um umsókn Íslands að ESB þannig að hann fær opið umboð til samninga án skilyrða af hálfu þingsins. Ráðherra fær vald til að velja samninganefnd, setja samninganefnd markmið og velja samráðsaðila eftir eigin mati.
Alþingi getur ekki falið ráðherra það sem vald þingsályktunin kveður á um. Ef það yrði gert væri búið að skipta út þingræði fyrir ráðherraræði.
Þar fyrir utan getur alþingi ekki falið ráðherra að sækja um aðild að Evrópusambandinu án þess að spyrja þjóðina fyrst.
Ríkisvaldið og alþingi fór illa með þjóðina á útrásarárunum þegar sértækir hagsmunir auðmanna réðu á kostnað almennings. Það er ekki leið til sátta þings og þjóðar ef farið verður í leiðangur til Brussel sem felur í sér víðtækt fullveldisframsal þjóðarinnar.
![]() |
ESB-tillagan birt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 14. maí 2009
101 elítan andspænis þjóðinni
Ríkisstjórnin og stjórnarsáttmálinn eru í meginatriðum verk 101 elítunnar, en svo heitir lítill þjóðfélagshópur með áhrif langt umfram mikilvægi. Elítan er sterk í fjölmiðlum, lítur á stjórnmál sem æfingu í almannatengslum, leiðist umræða um atvinnumál og velur stórar lausnir eins og ESB-aðild til að fela litla þekkingu á gangverki þjóðfélagsins.
Rithöfundur 101 elítunnar er Hallgrímur Helgason, hagfræðingur hennar er Þorvaldur Gylfason og erkitýpa fjölmiðlungs elítunnar er ónefndi blaðamaðurinn, Baugslærður og starfar á Fréttablaðinu.
Elítan sat við háborð útrásaraðalsins. Björgólfur eldri fjármagnaði listamenn elítunnar og Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnmálamenn hennar.
Samfylkingin er stjórnmálaarmur 101 elítunnar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 14. maí 2009
ESB-sinnar í fimm setningum
Algengasti stuðningsmaður inngöngu Íslands í Evrópusambandið er sölumaðurinn sem gegn þóknun tekur að sér að selja hvað sem er. Orðaflaumur aðildarsinna er margstefja en með þennan rauða þráð; við græðum á inngöngu. Fólk sem hugsar lífið í krónum og aurum, völdum og vegtyllum er fyrirmunað að skilja verðmæti eins og forræði eigin mála, fullveldi og sjálfstæði.
Í gamla Alþýðuflokknum var þetta fólk fyrirferðarmikið. Vilmundur Gylfason kallaði það skítapakk.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)