Fimmtudagur, 9. apríl 2009
Illugi, Guðlaugur og Þorgerður Katrín segi af sér
Hvað kostar Sjálfstæðisflokkurinn? Um það er spurt, ekki hitt hvort flokkurinn sé til sölu. Sjálfstæðisflokkurinn er uppvís að því að taka við mútufé frá auðhringjum sem því sem næst keyrðu þjóðina í gjaldþrot. Sjálfstæðisflokkurinn verður brennimerktur sem prinsipplaus stjórnmálaarmur græðigisvæðingarinnar ef flokkurinn tekur ekki á sig rögg um páskana og losar sig við spillingarliðið.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir með sín Kaupþingstengls ber sem varaformaður flokksins ábyrgð á innra starfi. Hún á að víkja. Illugi Gunnarsson með Glitnissjóð 9 á bakinu og handbendi í tilraun til að koma orkuauðlindum Íslendinga í hendur útrásarauðmanna á sömuleiðis að segja af sér. Guðlaugur Þór Þórðarson er milligöngumaður um styrkveitingu FL-group til flokksins. Hann á að segja af sér.
Nýkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, hefur tvo til þrjá daga til að skilgreina sjálfan sig og flokkinn til framtíðar. Ef flokkurinn slær skjaldborg um þremenningana er flokkurinn að mála sig út í horn sem spillingarflokkur Íslands.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)