Sósíalismi neyðarinnar

Laun voru skrúfuð niður á Íslandi eftir bankahrunið. Almenn samstaða myndaðist í þjóðfélaginu um að laun skyldu lækkuð, þau hæstu mest. Afleiðingin verður launajöfnun.

Skattar verða hækkaðir, burtséð frá því hverjir sitja næstu ríkisstjórn. Reynt verður að skerða sem minnst í mennta- og heilbrigðiskerfi en líklega verður kroppað þar í en þó meira í málaflokka eins og samgöngumál.

Gengisskráning krónunnar fækkar utanlandsferðum landsmanna. Vannýttir sumarbústaðir verkalýðsfélaga eru yfirbókaðir.  Bílaflotinn eldist næstu misserin en það leiðir aftur til meiri vinnu á bifreiðaverkstæðum.

Heimilisiðnaður nær sér á strik með prjónaskap og matjurtaræktun. 

Þjóðin vinnur skemmri vinnudag. Hverskyns félagsstarf blómstrar sem aldrei fyrr.

Við kjósum Vinstri græna 25. apríl.


Gulli í boði Baugsafganga

Forsíðufrétt Fréttablaðsins í dag er skrifuð til að bera blak af Guðlaugi Þór Þórðarsyni: Styrkirnir veikja ekki Sjálfstæðisflokkinn. Í netútgáfu systurmiðils Fréttablaðsins, DV, er að finna árásir á Agnesi Bragadóttur blaðamann sem hefur fjallað um mútumálið.

Baugsmiðlar eru sérfræðingar í vonlausum málstað: Útrásinni, auðmönnum, Evrópusambandinu og núna Guðlaugi Þór Þórðarsyni.


Bloggfærslur 15. apríl 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband