Hlutverk formanns í flokkskreppu

Fyrsta hlutverk formanns Sjálfstæðisflokksins er að halda flokknum saman, er gamalt viðkvæði. Þar er vísað til þess að í flokknum eru hópar og öfl sem stundum eru saupsátt. Hryðjurnar sem ganga yfir flokkinn um þessar mundir eru ekki vegna innbyrðis ósættis heldur af hinu að þjóðin er ósátt við Sjálfstæðisflokkinn, svo að notað sé kurteist orðalag.

Sjálfstæðisflokknum urðu á þau pólitísku mistök að reiða fram frjálshyggjuborð án þess að kenna þeim borðsiði sem þar settust að snæðingi. Þegar það rann upp fyrir þáverandi formanni, Davíð Oddssyni, að sumir veislugesta kunnu ekki mannasiði og aðrir voru ótíndir glæpamenn reyndi hann að reisa skorður. En það var um seinan. Veislan var hafin og andóf Davíðs var hjáróma í gleðinni. 

Þegar veislunni lauk með októberhruninu var eðlilega spurt um ábyrgðina á allri vitleysunni. Og enginn getur neitað því að Sjálfstæðisflokkurinn ber almenna pólitíska ábyrgð á frjálshyggjuveislunni sem lauk með skelfingu. Þetta eru pólitísk mistök sem stjórnmálaflokkur leiðréttir með því að endurskoða hugmyndafræði sína. Sjálfstæðisflokkurinn er saklaus af óábyrgum rekstri fjármálafyrirtækja og óráðssíu einstaklinga og fyrirtækja.

Mútumálið, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn tekur við siðlausum peningagreiðslum og hyglir fyrirtækjum sem reiddu fúlgurnar af hendi, er aftur á móti heilt og óskipt á ábyrgð flokksins. Flokkurinn getur ekki vikist undan því að axla ábyrgðina með því að flekkaðir trúnaðarmenn flokksins víki.

Formaður Sjálfstæðisflokksins þarf að sundra flokknum, krefjast afsagnar tilgreindra trúnaðarmanna, til að það grói um heilt milli Sjálfstæðisflokksins og þjóðarinnar.


mbl.is Fráleitt að draga nafn Kjartans inn í atburðarásina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leppar til að fela spillingu Sjálfstæðisflokksins

Atkvæði greitt Sjálfstæðisflokknum er atkvæði með óupprættri spillingu. Flokkurinn tók við stórum fúlgum frá Landsbankanum og FL-group kortéri áður en það var bannað samkvæmt lögum. Litlu síðar reyndu trúnaðarmenn flokksins, þingmenn þar á meðal, að gjalda greiðann með því að selja opinberar eigur til FL-group og tengdra félaga. Á mannamáli heitir þetta að þiggja mútur.

Útrásarauðmenn léku þann leik að fá leppa til að fela subbuslóð óheiðarleika í fjármálum. Sjálfstæðisflokkurinn fær tvo leppa til að fela pólitískan óheiðarleika.

Í pólitík, eins og í lífinu, er munur á mistökum og óheiðarleika. Sjálfstæðisflokkurinn ber almenna pólitíska ábyrgð á því að leiða óhefta frjálshyggju til vegs og virðingar í landsmálum. Það voru mistök að reisa ekki skorður við uppgangi blindrar græðgi. Mútumálið er ekki mistök heldur óheiðarleiki. Sjálfstæðisflokkurinn seldi pólitísk áhrif fyrir peninga og gerði það yfirvegað og kaldrifjað.

Forysta Sjálfstæðisflokksins fékk tækifæri til að bjóða þjóðinni sátt með því að taka afgerandi á mútumálinu. Tækifærið var ekki nýtt heldur var skrifað ótrúverðugt leikrit þar sem fíflum var att á foraðið og það kallað að upplýsa málið. 

Þegar Sjálfstæðisflokkurinn upprætir ekki spillingu í eigin ranni verður þjóðin að uppræta Sjálfstæðisflokkinn. Vonandi gerir hún það 25. apríl.


mbl.is Söfnuðu fé fyrir flokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 12. apríl 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband