Sunnudagur, 8. mars 2009
Snöktandi karlmennska
Jón Ásgeir lýsti sjálfum sér nýlega sem harðdrægum í viðskiptum. Í anddyri höfuðstöðva Baugs í London var stytta af Leifi heppna til að festa í sessi ímyndina um víkinga er sóttu England heim og gerðu strandhögg. Þegar bandarískt dagblað fjallar um Jón Ásgeir leggur það lykkju á leið sína til að líka Baugsforingjanum við vælandi Hróa Hött. Þessi sögupersóna hefur sökum klæðaburðar og félagsskapar legið undir grun um að vera argur maður - en norræna víkinganna hafði sama orðið um homma og hugleysingja.
Er nema von að Jóni Ásgeiri sárni.
![]() |
Skipulögð rógsherferð gegn fyrirtækjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)