Mánudagur, 16. mars 2009
20% niðurfelling skulda er lélegt tilboð
Tryggvi Þór Herbertsson þingmannsefni Sjálfstæðisflokksins er kominn í framsóknarbrækurnar og býður fimmtungs niðurfærslu á skuldum einstaklinga og fyrirtækja. Þetta er nánasarlegt tilboð í ljósi þess að pennastrikið á skuldir getur allt eins verið 100% - það kostar alls ekkert meira blek.
Þess vegna: Afnemum allar skuldir heimila og fyrirtækja. Verum eins og árið 2007 vari að eilífu.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)