Föstudagur, 13. mars 2009
Má búa vel fyrir minna en 40 milljónir króna?
Samkvæmt frétt Morgunblaðsins skulda fjögur þúsund húseigendur 40 milljónir króna eða meira í húsnæði sínu. Á Íslandi öllu munu vera 80 þúsund húseigendur og langstærsti hluti þeirra í skilum.
Þeir sem eiga húseignir fyrir 40 milljónir króna og þar yfir myndu teljast þokkalega staddir hvað efni áhrærir. Ef fólk með slíkar eignir er í vandræðum með sitt mætti kannski íhuga að það minnkaði við sig áður en almannafé er notað til að niðurgreiða húsakostinn?
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)