Mánudagur, 9. febrúar 2009
Hagfræðingarnir fatta ekki vald
Vald er sleipt hugtak sem hagfræðingarnir Jón Daníelsson og Gylfi Zoëga fatta ekki. Greining þeirra á bankahruninu tekur mið af formlegu valdi laga, reglna og eftirlitsstofnana en sagan er ekki einu sinni hálfsögð með tilvísun til formlegs valds.
Augljós mótsögn er í frásögn þeirra félaga um skort á aðhaldi stofnana gagnvart bönkum, þar sem þeir kenna lítilli fagmennsku um værð hins opinbera um leið og þeir vísa á háskóladeildir sem mærðu útrásarhagkerfið. Ef fagmennska á einhvers staðar heima þá er það í háskólum, þar sem þeir Jón og Gylfi starfa. Háskólarnir voru ásamt eftirlitsstofnunum, ráðuneytum, þingmönnum, fjölmiðlum og forsetanum í klappstýruliði útrásarinnar.
Valdið sem bankarnir bjuggu yfir var í fyrsta lagi fengið með innlendri einkavæðingu og í öðru lagi með ódýru erlendu lánsfé. Íslensk stjórnvöld, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur sérstaklega, bera ábyrgð á einkavæðingunni og hvernig hún gekk fyrir sig. Einkavæðingin lagði grunninn en spilaborgin var reist með erlendu lánsfé sem EES-samningur Alþýðuflokks Jóns Baldvins Hannibalssonar (við fengum allt fyrir ekkert´) tryggði aðgang að.
Glýjuvald bankanna batt og blindaði alla sem komu nálægt. Þrátt fyrir litlukreppu árið 2006 þegar hrikti í stoðum bankakerfisins var vald bankanna slíkt að hvorki hósti né stuna heyrðist frá eftirlitsstofnunum, stjórnvöldum eða fjölmiðlum - eina undantekningin var þegar Styrmir Gunnarssonar ritstjóri Morgunblaðsins ræksti sig.
Greining á bankahruninu sem ekki gerir óformlegt vald bankanna og útrásarauðmanna að miðlægu atriði er harla lítils virði.
Eflaust eru Jón og Gylfi prýðilegir fræðimenn á sviði hagfræði. En um leið og sérsviði þeirra sleppir eru félagarnir úti að aka. Þeir ráðleggja okkur inngöngu í Evrópusambandið með þeim rökum að það skapi traust á alþjóðavettvangi. Umsókn okkar um inngöngu væri yfirlýsing um að við treystum okkur ekki sjálf til að fara með eigin mál. Og án sjálfstrausts erum við eins og hverjir aðrir aumingjar sem engir aðrir myndu treysta.
![]() |
Veðjuðu á endurlífgun hagkerfisins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)